Sam visku bit :)
9.9.2010 | 19:00
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Já held þetta sé bara að verða gott núna :)
27.8.2010 | 18:07
td þá bjuggu tvær af systrum mínum (reyndar bara tímabundið ) norðan hnífapara og með þeim þar örugglega alveg sautján manneskjur
en ég lærði ekkert af því og flutti í smá þorp á Austurlandi
hér vita allir allt um alla og mig meðtalda, sem getur verið gott stundum ef ég veit ekki hvað ég er að gera, nú þá er einhver hérna sem veit það
best það fylgi sögunni að oft á tíðum hef ég ekki hugmynd um hvað ég er að gera
en það venst líka
ja það er annaðhvort að stökkva eða stinga sér
framhald síðar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Já mar fær nottla allt upp í hendurnar, á silfurfati og svo framvegis :)
24.8.2010 | 20:00
hef líklega vinnu í amk 2 mánuði í viðbót, húrra eða ehv
hebbði alveg verið til í smá frí sko, bara svona til að gera alls ekki neitt
oh well þetta gæti verið verra. Er annars bara ehv, já bara ehv, hmmm er grasið grænna hinumegin við girðinguna eða er það bara gervigras ?
Á mar kannski bara að setjast að og bíða eftir ellinni eða á mar að djöflast út um allt og finna allt það skemmtilega sem lífið hefur uppá að bjóða ? Eða bara fara og finna sjálfan sig í Tíbet eða Jokkmokk
Langar svo að vita hvort ..... er spennandi og hvort ...... er gaman og já langar að komast að fullt af hlutum, svo er ég bara að vinna og hef engan tíma fyrir öll þessi ævintýr sem mig langar að lenda í
Jahérna hér, mar kvartar yfir að hafa vinnu, hehehe það er örugglega helv.. heygaffallinn sem gerir þetta, mar aldrei þurft að hafa fyrir neinu
Lestrinum lokið, góðar stundir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Já ók ég veit :)
23.8.2010 | 18:22
Var í Slow Town um helgina, kalt og rigning og snjór niður í miðjar hlíðar
En habbði líka gaman að fortíðinni sem bankaði hjá mér eða öllu heldur hringdi í mig, alltaf gaman að heyra í hressu fólki
Nú svo eyddi ég smá tíma í garði niður á Eyri með Ninnu, alveg um hábjartan daginn sko
gaman að því
Ívar minn er hjá Birnu í Kef, kemur hingað austur m elsta bróður sínum á miðvikudaginn eða kvöldið, verður gott að fá hann heim, hann er búinn að vera í útlöndum í 2 mánuði
Nú svo er í ýmis horn að líta í sambandi við skólann hjá krökkunum, þarf að skoða ýmislegt þar
En over and out, will be back og svo framvegis
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Eyðing regnskógarins :)
20.7.2010 | 18:27
Hef átt ágætis dag annars, held að vísu að ég hafi gleymt að logga mig út úr tölvunni í vinnunni, kemur í ljós í fyrramálið
Franskir dagar framundan hér í fásinninu, verður vonandi gaman að því
Allir fullir og skemmtilegir að vanda
en ég ætla bara að vera skemmtileg
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Hamingjupakkinn :)
15.7.2010 | 17:29
ætti kannski að fara í ómskoðunardæmið og láta svo einhvern taugaskurðlækni skoða þær myndir
En ég er ekkert alveg að drepast svo við sjáum nú til með það, kemur allt í ljós
En sko þetta með hamingjupakkann, held það verði bara í gangi um versló á Einni m öllu á Akureyri, er ekki stuð í því ?
Getur verið að ég vinni lengur en fram að mánaðarmótum, kemur í ljós í næstu viku, gaman að því
En allavega er alveg að koma helgi, skelli mér sennilega á blústónleika annaðkvöld á Stöðvarfjörð, er nottla grúpía svo ég verð að mæta
Er svona þar fyrir utan bara þokkaleg, dagarnir fljótir að líða í vinnunni, sem er gott
Góðar stundir gott fólk
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þoka :)
10.7.2010 | 21:36
Það er aftur á móti hin argasta hitabylgja í mínu fyrrverandi heimalandi Svíaríki, ja sko hinu heimalandinu mínu verður það víst að heita þar sem ég er tvöföld í roðinu, með bæði íslenskan og sænskan ríkisborgararétt
Langar soldið að vera þar núna, skil ekki afhverju, ég átti oft erfitt með að þola hitann þarna á sumrin, fer ekki og syndi í einhverjum (að mínu mati ) ísköldum vötnum né hef gaman af að liggja í sólbaði
Nú svo ég tali nú ekki um allar pöddurnar og kvikindin sem eru þarna á hverju strái á sumrin, bara hræðilegt, held ég sé bara orðin jafn upptekin og aðrir íslendingar af veðrinu
Það sem ég sakna mest frá Svíþjóð er nottla fólkið, bæði skylt og óskylt, flóknara en svo er það ekki
Nóg um það í dag, over and out, will be back und so weiter
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þrældómur :))))
5.7.2010 | 23:51
Fór um helgina með Ívar og Aleksander i flugið til Köben, fór á Glerártorg, hitti bara fólk hérna að austan þar
Var hjá mömmu, fór til Ninnu, drakk kaffi, át súkkúlaði og talaði skít
Fór svo á góðan fund á sunnudagsmorguninn með góðu fólki
Kom svo heim í gærkvöldi og tók Evu til fyrir sumarbúðirnar, það voru nú hálfgerð geimvísindi, hún fór svo þangað í morgun, kemur heim á föstudaginn
Svo afþví að ég er svona aumingi þá er ég að fara í röntgen á morgun á Norðfirði, á eiginlega að fara í svona sneiðmyndadæmi en sú sjoppa lokar víst á sumrin á Akureyri
Verð að vinna amk út þennan mánuð, sem er gott
Þetta var nú alveg óskaplega óintressant lesning þetta blogg mitt í dag, ja hérna en það er stundum þanneigin bara á austfirsku
Over and out
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Eyyyyyyyyyyyymingi :)
26.6.2010 | 21:16
er svo að drepast í mjöðminni og hægri löppinni að ég get varla gengið nema með óhljóðum
Hef annars átt ágætis viku í vinnunni, ágætis fólk sem vinnur þarna og nóg að gera en ég sit alla daga fyrir framan tölvu og það hef ég ekki gert mjöööög lengi
Síðast þegar þetta kom fyrir mig var ég einmitt búin að sitja lengi við tölvuna en þá að skrifa ritgerð en þetta lagast sjálfsagt fljótlega, já amk ætla ég í vinnuna á mánudaginn
Voða gott að þetta gekk alltsaman vel með frænku litlu í Noregi, gott að Birna gat farið þarna út til hennar
Ekkert gaman að lenda á spítala í útlöndum og hafa ekki mömmu hjá sér
En er allavega búin að liggja uppí rúmi í mestallan dag og ég sem ætlaði að gera svo mikið um helgina, oh well kemur víst dagur eftir þennan dag
Góðar stundir gott fólk
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Vinntu bara og vinntu :)
21.6.2010 | 21:45
Eva varð eftir hjá frænkum sínum
verður í nokkra daga
Nú svo byrjaði ég í vinnunni í morgun, mætti á Reyðarfjörð kl. ÁTTA í morgun, fór svo á Norðfjörð og kom þaðan seint og síðar meir
Þetta var svosem ágætt, ekkert geysilega krefjandi starf en hookers, betra en að skríða í blómabeðum með rauðum túlípönum
OG ég þarf ekki að tala við fullt af fólki alla daga
það er sko ekki ég samkvæmt áhugasviðskönnun sem ég fór í sko
Nú svo er ælupest í gangi í fjölskyldunni, 3 búnir með hana, ég ekki ein af þeim
Og þar með var lesturinn búinn, ekkert meira í höfðinu á mér í dag
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)

tryggur
ollana
dagny65
due
rannug
topplistinn
jokapje
jodua
kaffikelling
fjola
sveinni






