Færsluflokkur: Bloggar

Yes HM að byrja í dag :))) who cares :)

Já er svo spennt fyrir þessu fótboltadæmi þarna í Suður-Afríku já eða bara ekki LoL Fann Dagskrá menningarferðar til höfuðstaðar Norðurlands sem átti sér stað fyrir amk 11 eða 12 árum síðan Smile Bara frábær lesning : ca 19.30 Móttökuathöfn á Akureyrarflugvelli, lúðasveit Hjálpræðishersins með dyggri aðstoð burtfluttra framfirðinga og skyldleikaræktaðra Höfðhverfinga !LoL ca: 20.00 Kvöldverður að Tjarnarlundi 16d, matseðill a la mamma, Dúi disco, frægasti discjockey norðan Alpafjalla sér um dinnertónlist og skemmtiatriði á meðan borðhaldi stendur !!! Minnir að þessi helgi hafi verið hin skemmtilegasta eins og oft þegar við systurnar komum saman Wizard En í dag þarf ég aðeins að drulla yfir fólk já amk einn vitleysing en ég hef nú lúmskt gaman að því LoL Eigum frábæra helgi gott fólk, það ætla ég að gera LoL

Confession :)

Þarf að bikta mig aðeins LoL fór á vigtina í ræktinni og er hvorki meira né minna SEXTÍU OG NÍU kíló W00t hef ekki verið svona mörg kíló síðan ég var ólett í eitthvað skiptið, geggjað kúl LoL Axel að koma heim á laugardaginn og tekur Pekka með sér, ferlega ánægð með að fá þá báða hingað Smile Fer og næ í þá til Slow Town á laugardaginn, bara snilld Smile Er annars komin í ævilangt prjónabann, fór að prjóna og fór strax að finna til í öxlinni Woundering nenni því ekki svo ég hætti bara að prjóna, ekki orð um það meir Wink Er líka að pirra mig á paperpushers sem vinna hjá mínu sveitarfélagi Devil þessir aular vita ekkert í sinn haus, stórundarlegt hvernig hægt er að reka heilt sveitarfélag með starfsmönnum, aðallega yfirmönnum, sem virðast margir hverjir ekki hafa nokkra hugmynd um hvað þeir eru að geraShocking Það eru sjálfsagt ágætis manneskjur þarna innanum og samanvið en því miður eru þeir starfsmenn í miklum minnihluta Woundering Já svo er nú sumarið komið í öllu sínu veldi Cool fullar rútur af túristum sem keyra hægt í gegnum plássið og skoða þá innfæddu vel og vandlega Smile og þá langar mig alltaf til að gera eitthvað flippað en hef nú hingað til getað haldið aftur af mér, maður vill nú að þeir þori að koma aftur, þeir eiga nú víst að bjarga okkur úr peningavandræðunumSmile Góðar stundir and over and out Smile

Þakklæti :)

Er alveg ferlega óduglega að skrifa hérna Shocking ens og mér finnst nú gaman að viðra skoðanir mínar á öllu og öllum, fá fleiri að heyra en vilja LoL En allavega þá er fyrirlesturinn í dag um þakklæti sem ég finn oft fyrir af hinum ýmsustu ástæðum Smile Sumt fólk gerir mann ljósa hluti sem maður getur verið þakklátur fyrir og viðkomandi er ekki einusinni að reyna það, það eru hæfileikar skoLoL td að lífið er ekki alltaf ævintýri og að (uppáhaldssetningin mín þessa dagana ) happy endings are few and far between FootinMouth get verið þakklát fyrir að hafa komist að því Smile Nú eða það að sumt fólk sér ekki (vill ekki sjá ) allt það góða sem í boði er í lífinu ef það bara gengur einu (eða jafnvel bara hálfu ) skrefi en það þorir, er þakklát fyrir að þora því from time to time LoL ok það gengur ekki alltaf upp en maður situr allavega ekki uppi með fullt af efum LoL er þakklát fyrir það LoL Oh well this is as good as it gets greinilegaFootinMouth ég er nú farin að hljóma eins og sagt er svo smekklega á sænsku : bitterfitta Errm en tilveran sökkar (á góðri íslensku ) eitthvað þessa dagana, getur eiginlega bara bestnað úr þessu Wink Góðar stundir Shocking

Mig vantar Yugo :))

Er alveg að sjá að ég er svo ekki týpan sem á að eiga hús Smile finnst svo ekkert aðlaðandi við að þurfa að gera allt sjálf Woundering Var svo að fíla að hafa þetta svona eins og þar sem ég bjó áður, ef eitthvað bilaði þá hringdi ég í Crendo sem sendi mér Yugo sem lagaði allt LoL Bara snilld og svo fékk maður smá svona slúður um nágranna í kaupbæti LoL Eins og í dag í svona góðu veðri þá langar mig ekkert til að slá lóðina Woundering nei ég vil heldur fara niðrí fjöru eða uppí fjall og horfa á fugla eða fallegt landslag Wink Langar í andarunga, eða bara unguð egg og láta hænurnar liggja á , gæti verið gaman að því Smile þær voru nú skemmtilegar endurnar heima í Eyrarlandsvegi LoL held stundum að ég hebbði átt að flytja í sveit, myndi sjálfsagt eiga við mig að eyða dögunum í svona bláum galla og stígvélum að moka flór og svona skemmtilegheit Wink Svo er kominn Júní og fullt að ske í sumar, hátíðir hingað og þangað og ýmislegt kúl í gangi Wink Farin út í góða veðrið en ekki til að slá lóðina LoL


Það haustar snemma :)

Kalt, hvasst og ég fer bara ekkert út LoL Ýmislegt í fréttum þessa dagana sem gaman er að LoL Þeir þarna vændiskaupendurnir fá bara að skammast sín í friði í réttarsalnum, þarf að vernda þá fyrir hneyksli, hehehehehe já sæll LoL ef maður kaupir sex, finnst manni það ekki í lagi eða ?  Ég kaupi ekki sex því mér finnst ekki ok að gera það, einfaltWink Ef mér fyndist það ok þá myndi ég framkvæma þaðLoL En svo eru nottla kosningar um helgina, er ekki búin að ákveða mig hvað ég ætla að kjósa Shocking undarlegt hvað þessir stjórnmálaflokkar eru ekki sammála mér LoL Finn engan flokk sem hefur mínar skoðanir á stefnuskránni Tounge En allavega þá er ég aðeins farin að fá leið á að hanga svona heima, orðið örlítið langur tími Woundering En ekki nógu leið til að fara að starfa með Kvennadeild í neinum félagasamtökum, ég fæ alveg gæsahúð þegar ég hugsa um svona fyrirbrigði Angry Það er 2010 andskotinn hafi það, getur ekki fólk bara starfað saman í svona félögum, er ekki þetta orðið ansi úrelt að skipta þessu svona, arrrrg Angry En hérna er uppáhalds spekin mín þessa dagana : Happy endings are few and far between Wink Segir ýmislegt um andlegt ástand undirritaðrar í þessum töluðu/rituðu orðum Whistling

Að hella í hárið eða fá sér í tána :))

Já ég drakk brennivín hérna á árum áður og landa og bara svona flest sem rann Smile Svona eins og þetta gekk fyrir sig í daga þá var þetta aldrei spurning um hvort maður ætlaði að byrja að drekka heldur bara hvenær Woundering Ég gerði mér nú fljótlega grein fyrir því að þetta væri nú ekki alveg að gera sig fyrir mig en hin frábæra uppfinning afneitunin kom þá sterk inn og ég hélt þessu áfram með hinum ýmsu afleiðingum sem þó voru ekki nógu alvarlegar til að ég sleppti þessu! Mér reiknast til að ég hafi eytt svona tólf árum í þetta rugl mitt áður en ég fór á Vog og svo Staðarfell og það er það besta sem ég hef gert svona fyrir utan það að eiga börnin mín Smile   Síðan hafa liðið nokkur ár, nokkuð mikið fleiri en árin sem ég drakk og ég er voða fegin og ennþá alveg jafn sannfærð um að ég og brennivín, landi eða bjór eigum bara allsekki og enganveginn samleið Smile Þetta virkar einn dag í einu Smile Góðar stundir Smile

Undir bláhimni blíðsumars nætur :)

Hef verið að sækja um vinnur LoL bráðfyndið eiginlega, ein þeirra felur í sér að rífa upp gamlar girðingar all over the place LoL Bráðsniðugt kannski í góðu veðri já eða eitthvaðTounge Það er rigning hérna, öruggleg sautjánda daginn í röð Shocking nei er kannski aðeins að ýkja þarna en þetta er orðið ágætt í biliWoundering Hef soldið svona á tilfinningunni að ég sé going nowhere fast Shocking Fásinnið eitthvað að ná mér hérna sem er ekki gott, þarf að gera eitthvað í því máli !!!! Farin í kaufffélagið Smile

Hehehehehe :)))

Já var þaggi bara LoL jú kannskiPolice men in uniform Whistling eeeeh ætli B...a sé með fjarvistarsönnun LoL
mbl.is Stal erótískum lögreglubúningum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Föstudagur at last :)

Já mikið ósköp er gott að föstudagurinn er kominn, hérna fyrir allnokkuð löngu síðan fannst mér það góðir dagar til að vera full en that was then and this is now LoL Hvað var annars svona gott við að vera fullur, hmmm man það eiginlega ekki lengur, hlýtur að hafa verið ehv við þetta fyrst maður eyddi svona miklum tíma og orku í þetta Errm En það er gott að vera edrú og í kvöld er fundur og ég þangaðLoL Þessi vika hefur verið skrýtin, mér hefur leiðst og það skeður ekkert mjög oft, hmm vantar tilbreytingu, hehehe LoL Hugmyndaflugið er ekki á flugi ja nema einhversstaðar annarsstaðar kannski Wink Andinn svífur ekki yfir vötnunum, nebb, en kannski lagast það, ég þarf að finna pappíra oní kassa, þar gæti leynst ýmislegt skemmtilegt úr fortíðinni LoL   Stundum ofbýður mér alveg hvað ég er jákvæð Tounge en hætt núna, já og munið að aðgát skal höfð í nærveru sálarHalo

Keep it simple stupid :)

Mér hættir til að flækja hlutina, nauuuts, getur það verið Tounge held þetta sé bara í genunum, en það er líka allt í lagi Wink Vil frekar hugsa of mikið en ekki neitt, hafa hugsunina frekar langa en stutta LoL Vil heldur hafa helling af tilfinningum í gangi LoL vil ekki vera tilfinningalegur öryrki sem hleyp eða fer úr landi ef ég finn fyrir tilfinningum sem ég kannast ekki við og vil ekki hafaLoL nebb allar tilfinningar eru löglegar og eiga fullan rétt á sér, svo er bara hvernig ég díla við þær sem er máliðLoL   En það er svona hryllilega mikil hitabylgja hérna, alveg ÞRETTÁN stig á mælinum og við erum að tala um rauðar tölur hérna Cool Höfum gaman að þessu til sjávar og sveita og milli fjalls og fjöru LoL Over and out LoL

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband