Kettir

Ég á 5 ketti sem er gott og þar sem ég bý í útlöndum þá er maður nú alltaf að pæla í að flytja heim en þá kemur þetta með kettina!  Fór að gamni að athuga hvað það kostar að hafa kisurnar í sóttkví við heimkomuna, þetta hlýtur að vera brandari, 160 000! íslenskar krónur fyrir 1! kött í 1 mánuð!  Hvað er þeim eiginlega gefið að éta, kavíar og kampavín með?  Þetta er náttúrulega bilun, kostar meira fyrir kettina mína í sóttkví en hvað kostar að flytja búslóðina heim!  Eins gott að ég er ekki á heimleið enn, bíð bara með það þar til kettirnir eru komnir á vit forfeðra sinna þeas hafa dáið úr elli!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Það er einmitt út af þessu sem ég get ekki flutt til Spánar. Því ég gæti aldrei flutt heim aftur vegna kattanna minna tveggja.

Svava frá Strandbergi , 23.1.2007 kl. 18:50

2 Smámynd: Erna Evudóttir

Ætli sé bara ein sóttkví á Íslandi?

Erna Evudóttir, 24.1.2007 kl. 07:33

3 identicon

Já og þá á á eftir að hugsa um hundinn og eðluna he he he he he eitthvað myndi það kosta líka .... Lu

Jens Hjelm (IP-tala skráð) 24.1.2007 kl. 08:16

4 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Eva vil prófa að vera á svona lúxus sóthví... ætli maður fái að fara í nudd, heitapott og svona? 

Es. Velkomin í nörd klúbbinn  Erna

Gunnar Helgi Eysteinsson, 24.1.2007 kl. 16:36

5 Smámynd: Erna Evudóttir

Þetta er örugglega eins og fínasta spa, pöntum bara pláss strax!

Erna Evudóttir, 24.1.2007 kl. 18:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband