Þoka :)

Það er þoka hérna í fásinninu, ekki í fyrsta skipti og örugglega ekki það síðasta heldurSmile Það er aftur á móti hin argasta hitabylgja í mínu fyrrverandi heimalandi Svíaríki, ja sko hinu heimalandinu mínu verður það víst að heita þar sem ég er tvöföld í roðinu, með bæði íslenskan og sænskan ríkisborgararétt LoL Langar soldið að vera þar núna, skil ekki afhverju, ég átti oft erfitt með að þola hitann þarna á sumrin, fer ekki og syndi í einhverjum (að mínu mati ) ísköldum vötnum né hef gaman af að liggja í sólbaði Shocking Nú svo ég tali nú ekki um allar pöddurnar og kvikindin sem  eru þarna á hverju strái á sumrin, bara hræðilegt, held ég sé bara orðin jafn upptekin og aðrir íslendingar af veðrinu Tounge Það sem ég sakna mest frá Svíþjóð er nottla fólkið, bæði skylt og óskylt, flóknara en svo er það ekki Heart Nóg um það í dag, over and out, will be back und so weiter LoL

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birna Dúadóttir

Mikið er ég nú fegin að vera laus við þokuskrattann Myndi týnast í henni

Birna Dúadóttir, 10.7.2010 kl. 23:20

2 Smámynd: Erna Evudóttir

Hehehe já það er hætta á því nebblega

Erna Evudóttir, 11.7.2010 kl. 09:22

3 Smámynd: Birna Dúadóttir

Heyrðu það er nú alger dauði hérna á blogginu, eru allir að rigna niður

Birna Dúadóttir, 13.7.2010 kl. 13:16

4 Smámynd: Erna Evudóttir

Ég er opinberlega hætt að hugsa um, lesa um og skrifa um veður verð bara skemmtileg hér eftir

Erna Evudóttir, 13.7.2010 kl. 23:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband