Sápuóperur og sameiginlegt forræði

Ég var að vinna í morgun og í kaffitímanum snerust samræðurnar um amerískar sápuóperur og höfðu greinilega allir viðstaddir nema ég horft á allt þetta sem um var rætt!  Ég þoli ekki sápuóperur, ég horfi ekkert mjög mikið á sjónvarp og þegar það gerist þá eru það undartekningarlítið fréttir, heimildarmyndir eða morð sem ég horfi á!  Ég er mjög nálægt því að hafa fordóma gagnvart fólki sem horfir á sápuóperur, verð að gera eitthvað í þessu!  Nú svo eins og þið kannski vitið þá á ein læðan mín sennilega von á sér seinna í haust en það er sko eitt vandamál með það, hún á nefnilega 2 heimili, hjá mér og hjónum sem búa hérna stutt frá mér, svo við erum eiginlega með sameiginlegt forræði yfir kettinum en hvernig verður ef hún eignast kettlingana hjá þeim?  Þetta gæti orðið snúið, verð sjálfsagt bara að láta minn lögfræðing tala við þeirra lögfræðing!  Verð að hætta núna, þarf að læra, skóli í kvöld! Have a nice tuesdayGrin

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Sammála með sápuóperurnar, algerlega óskiljanlegt að fólk horfi á þetta rusl og sumir festast svo, að þetta er orðið hluti af daglega lífinu Heyrðu ef þú verður í einhverjum vandræðum í forræðisdeilunni, þá hef ég á mínum snærum lögfræðing, snjallan, ungan og fallegan

Jónína Dúadóttir, 28.8.2007 kl. 11:37

3 Smámynd: Birna Dúadóttir

Forræðisdeilan gæti nú orðið þín fyrsta sápuópera

Birna Dúadóttir, 28.8.2007 kl. 22:35

4 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Lýsi eftir tillögum að nafni á sápuóperuna hennar Ernu ! Mér datt í hug : "Loðnir og litlir", "Lögfræðingurinn og kisulóran" Hm... samt einhvernveginn ekki alveg nógu slepjulegt......

Jónína Dúadóttir, 29.8.2007 kl. 10:14

5 Smámynd: Birna Dúadóttir

Loðnir og litlir,elska þaðVið hringjum í´Séð og heyrt þegar hæðst stendur

Birna Dúadóttir, 29.8.2007 kl. 12:22

6 Smámynd: Erna Evudóttir

Ég er nú svo mikill perri að mér dettur eitthvað allt annað í hug en kettlingar þegar ég les Loðnir og litlir

Erna Evudóttir, 29.8.2007 kl. 13:48

7 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ha hvaða kettlinga ?

Jónína Dúadóttir, 29.8.2007 kl. 19:07

8 Smámynd: Birna Dúadóttir

Birna Dúadóttir, 29.8.2007 kl. 20:39

9 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Takk fyrir sendinguna elsku "stóra systir" mín! Þetta er flott

Jónína Dúadóttir, 30.8.2007 kl. 07:58

10 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Og viltu gefa mér heimilisfangið hennar Jóku, búin að týna því, ég ætla að senda henni kokteilsósuna sem ég gleymdi um daginn

Jónína Dúadóttir, 30.8.2007 kl. 08:02

11 Smámynd: Erna Evudóttir

Ekkert að þakka!  Jóka býr á Kärrhöksgatan 34, 556 12 Jönköping!

Erna Evudóttir, 30.8.2007 kl. 08:24

12 Smámynd: Jóhanna Pálmadóttir

Já, hengja mig út á netinu bara! Kenni ykkur um ef einhverjir perrar fara að banka uppá hjá mér!!!  

Gott nafn á sápuóperuna hennar Ernu: "The lawyer and the Pussy" eða kannski "The Lawyers Pussy"

Jóhanna Pálmadóttir, 30.8.2007 kl. 18:25

13 Smámynd: Erna Evudóttir

Þú ert nú svo mikill Gísli, vilt bara ekkert eignast nýja vini

Erna Evudóttir, 30.8.2007 kl. 18:52

14 Smámynd: Birna Dúadóttir

Gísli

Birna Dúadóttir, 30.8.2007 kl. 18:59

15 Smámynd: Erna Evudóttir

Á Uppsölum

Erna Evudóttir, 30.8.2007 kl. 20:13

16 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Hún er svo mikill "Gísli" !!!!!!!!!

Jónína Dúadóttir, 30.8.2007 kl. 22:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband