Nafnafyllerí!

Hvað er eiginlega í gangi, nöfnin sem fólki dettur í hug að setja á krakkana sína, hvert öðru furðulegra!  Og hvaða árátta er það að geta ekki notað íslensk nöfn, það er nóg til af þeim! 
mbl.is Má ekki heita Valgard
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Jamm að vísu skil ég ekki þetta með nafnið Valgard, við erum hér á landi með þessa ágætu Mannanafnanefnd sem hefur samþykkt miklu fáránlegri nöfn en þetta. Bíð alltaf eftir því að þeir samþykki t.d. karlmannsnafnið Skrokkur og kvenmannsnafnið Fata, af því að það er ekki hægt að segja að þau falli ekki að íslenskri málfræði

Jónína Dúadóttir, 11.9.2007 kl. 07:24

2 Smámynd: Birna Dúadóttir

Jamm stundum ekki skiljanlegt,eins og til dæmis að samþykkja nafnið Engill.

Birna Dúadóttir, 11.9.2007 kl. 07:55

3 identicon

verð að segja að mér finnst Hrafntýr ekkert ljótt. Bara mjög íslenskt.

Anna (IP-tala skráð) 11.9.2007 kl. 08:35

4 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Mikið af nöfnum við notum í dag voru ekki nöfn frá byrjun

Gunnar Helgi Eysteinsson, 11.9.2007 kl. 13:02

5 Smámynd: Jóhanna Pálmadóttir

Mér finnst mikið af þessum nöfnum í greininni vera stórfurðuleg og er ekki alveg að skilja rökhugsunina á bak við þetta!!!

Jóhanna Pálmadóttir, 11.9.2007 kl. 18:50

6 Smámynd: Jóhanna Pálmadóttir

...og er í alvöru til eitthvað karlmannsgrey á Íslandi sem heitir Kristall??? Ég ætla að skíra barnið mitt Loðmund Langbrók Síðbrók Stuttbrók Svedjehed ef það verður strákur!!!  Fellur það ekki ágætlega að íslenskri málfræði?

Jóhanna Pálmadóttir, 11.9.2007 kl. 18:52

7 Smámynd: Birna Dúadóttir

Eva Jóhanna Pálmadóttir Svedjehed Pólítí.farðu varlega með strákanöfnin.

Birna Dúadóttir, 11.9.2007 kl. 19:31

8 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Þú gleymdir... er ekki líka Buuck - ThorarenssenÉg held við verðum eitthvað að hafa hönd í bagga með nafnið á blessuðu barninu

Jónína Dúadóttir, 12.9.2007 kl. 07:03

9 Smámynd: Birna Dúadóttir

uss segðu einhver verður að líta eftir þessu.Við verðum bara að sofna okkar eigin Pólití-mannanafnanefnd(vá)

Birna Dúadóttir, 12.9.2007 kl. 17:39

10 Smámynd: Erna Evudóttir

Má ég vera formaður?

Erna Evudóttir, 12.9.2007 kl. 18:14

11 Smámynd: Birna Dúadóttir

Ekki spurning,þú ert svona bóndi er bústólpi-týpan

Birna Dúadóttir, 12.9.2007 kl. 19:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband