Bara vírus!

Var með Ívar hjá lækni áðan og það er eiginlega ekkert að honum, bara vírusFootinMouth , þessi læknir er nú kafli útaf fyrir sig, heitir einhverju nafni sem ég get ómögulega munað og allsekki borið fram, honum fannst Ívar hálf fölur og vildi vita hvort hann borðaði almennilega, ég meina ef hann sjálfur væri búinn að vera með 39 stiga hita í meira en viku þá væri hann nú örugglega líka fölur og jafnvel bara ræfilslegurShocking Vona bara að þetta sé að lagast, Ísak er orðinn hitalaus og hættur að finna til í eyranu sem er gott, er voða fegin þegar krakkarnir þurfa ekki pensillín! Nú svo er Axel bráðum að fara til Englands, þarf að fara að ná í gjaldeyrir fyrir hann og kaupa ýmislegt sem hann þarf að hafa með sér, þetta verður örugglega voða skemmtileg ferð fyrir hannSmile Núna bara ca 2 mánuðir í flutningana, þetta verður sjálfsagt bara alveg geysilega skemmtileg reynsla að búa í litlu þorpi austur á landi, eða hvað? Segjum það allavegaTounge

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Neeeei var hann föööölur Gott að þetta er allt á réttri leið hjá þeim greyjunum Það verður sko alveg ógeðslega skemmtileg reynsla að geta komið landleiðina að heimsækja þig, svo ég minnist nú ekki á þegar þú kemur svo skokkandi hingað

Jónína Dúadóttir, 15.4.2008 kl. 11:14

2 Smámynd: Erna Evudóttir

Já skrepp þetta fyrir hádegi einhvern daginn

Erna Evudóttir, 15.4.2008 kl. 11:17

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Droppar í smá kaffisopa áður en þú ferð að taka til hádegismatinn Kúl !

Jónína Dúadóttir, 15.4.2008 kl. 11:27

4 Smámynd: Birna Dúadóttir

Skokkandi,skreppandi,þessar vegalengdir á milli staða eru hvort eð er bara hugarástandFlott að allir eru að lagast á þínu heimili

Birna Dúadóttir, 15.4.2008 kl. 12:26

5 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Já Erna mín, heyrirðu það ! Þessir 500 kílómetrar sem verða á milli okkar, kannski nokkrir sentimetrar til eða frá, eru bara hugarástand og ekkert því til fyrirstöðu að þú droppir í kaffi til mín nokkrum sinnum í viku

Jónína Dúadóttir, 15.4.2008 kl. 12:55

6 Smámynd: Jóhanna Pálmadóttir

Ég er enn með fordóma út í smápleis úti á landi svo ég vel að þegja!

Jóhanna Pálmadóttir, 15.4.2008 kl. 13:43

7 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Hvaða hvaða.... Jóka mín

Jónína Dúadóttir, 15.4.2008 kl. 13:45

8 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Erna ert´að pakka niður ?

Jónína Dúadóttir, 17.4.2008 kl. 09:33

9 Smámynd: Birna Dúadóttir

Eddna mín kondu uppúr kassaskrattanum,ég sé þig vel

Birna Dúadóttir, 17.4.2008 kl. 12:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband