Skrýtið!

Það er margt skrýtið og skrýtnast er að Einar minn verður ekki hjá mér á jólunum í fyrsta skipti í tuttugu og eitt árCrying Ég geri mér alveg grein fyrir því að þetta telst nú sjálfsagt gangur lífsins og ég hef verið að reyna að hugsa það svoleiðis en IT STINKSAngry Oftast er mér alveg sama þó ég vaði ekki í peningum en akkúrat núna væri það fínt, þá gæti ég sent honum og Jojo miða svo þau geti komið og verið hjá okkur !  En allavega þá er Axel að koma heim um jólin og það er gott, verður heima alveg þangað til 13.janúar, gaman að þvíHeart Nú ég hef verið að reyna að komast til Slow Town síðan á laugardaginn og er ekki komin þangað enn, döööööh, en geri aðra tilraun á morgun og svo heim á Þorláksmessu eða AðfangadagsmorgunSmile Nú ég hef ekki sent nein jólakort í ár, hef verið voða tóm eitthvað síðan ég kom heim frá Svíþjóð, mikið að gera í vinnunni svo ég bara gleymdi þessu alveg þangað til það var of seint, sendi bara fleiri fyrir næstu jólSmile Nú ég þarf að komast í klippingu og það væri nice að geta keypt mér föt fyrir jólin en ætli það bíði ekki eitthvað, mikilvægara að halda jól fyrir krakkanaSmile Ég var að hugsa um að skrifa hérna heil ósköp um hvernig farið er með gamalt fólk á Íslandi, ég hef skoðun á því, geri það seinna, get bara sagt að ég ætla ekki að vera gamalmenni á stofnun hér, né annarsstaðarAngry Best að halda áfram að gera eitthvað hérna, gerist ekki af sjálfu sér !

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birna Dúadóttir

Huh þetta er bara leiðinlegt þegar þau fara að týnast í burtu(r) En hafðu ekki áhyggjur, þetta lagast ekkert með hverju barninu  Ok mín er padda núna, á þetta til víst  Frábært að Axel skuli koma

Birna Dúadóttir, 21.12.2009 kl. 15:37

2 Smámynd: Birna Dúadóttir

'Eg er óge móðguð yfir því að fá ekkert jólakort  þú veist hvernig þetta er í okkar famelíu

Birna Dúadóttir, 21.12.2009 kl. 15:39

3 Smámynd: Erna Evudóttir

Já shit, vissi sko alveg hvað ég var að gera, móðga alla stórfjölskyldun viljandi, hehe

Erna Evudóttir, 21.12.2009 kl. 16:34

4 Smámynd: Birna Dúadóttir

Múhaah láttu mig bara vita tímalega fyrir næstu jól

Birna Dúadóttir, 21.12.2009 kl. 16:39

5 Smámynd: Erna Evudóttir

Geri það, hér og nú, þú færð ekkert jólakort þá heldur, hah

Erna Evudóttir, 21.12.2009 kl. 21:19

6 Smámynd: Jónína Dúadóttir

FÆ ÉG EKKERT JÓLAKORT ??? Ógisslega móðguð...Jæja verð þá víst að láta mér nægja smá jólaheimsókn... miklu skemmtilegra... með þeim formerkjum að þið komist þá hingað

Jónína Dúadóttir, 22.12.2009 kl. 06:50

7 Smámynd: Jóhanna Pálmadóttir

ég gleymdi að senda jólakort, ætlaði alveg að gera það sko...svo hérna koma sona jólakort á línuna bara:

Gleðileg jól og farsælt komandi ár, 

ástarkveðjur

Jóka+4

Jóhanna Pálmadóttir, 22.12.2009 kl. 17:43

8 Smámynd: Birna Dúadóttir

Æts takk fyrir kortið Jóka mín

Birna Dúadóttir, 23.12.2009 kl. 08:42

9 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Þetta er fínt kort Jóka mín

Jónína Dúadóttir, 23.12.2009 kl. 13:41

10 Smámynd: Erna Evudóttir

Mikið rosalega skrifar hún Jóka vel, hafiði tekið eftir því ?

Erna Evudóttir, 25.12.2009 kl. 00:25

11 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Já og svona falleg myndin sem hún teiknaði, framan á kortinu

Jónína Dúadóttir, 25.12.2009 kl. 06:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband