Bloggfærslur mánaðarins, mars 2007

Engar fréttir eru góðar fréttir, held ég!

Hef ekkert lesið um Ninnu og Jóa í blöðunum svo þau eru sjálfsagt bara að skemmta sér vel í Borg óttans!  Hér sé kvef í öllum myndum og sólin skín, krakkarnir komin í páskafrí og bara ánægð með það!  Annars er ég ekkert spennt fyrir páskunum, skreyti ekki né föndra og skipti allsekki um gardínur, finnst ekkert að maður þurfi að borða eitthvað sérstakt páskafæði, sé bara til þess að það sé til nóg af nammi handa öllum!  Hérna á árum áður var páskafríið notað til skemmtanahalds minnir mig en það er nú liðin tíð sem betur ferGrin .  Njótið helgarinnar, það ætla ég að geraCool

Togarajaxlar eru ekki í tísku!

Sá ólétta konu í dag sem er ekkert í frásögur færandi nema að því leyti að ég mundi eftir því þegar ég fór í próf í heimspeki daginn áður en Ísak var tekinn með keisara og fannst  bara nokkuð eðlilegt að fara í það prófShocking!  Fékk btw góða einkunn í prófinuGrin.  Þetta er náttúrulega bilun sé ég núna en mér fannst það ekki þáErrm.  Man eftir fullt af svona sem ég hef gert og finnst núna að ég hljóti að hafa verið svolítið biluð á geði!  Held ég sé loksins farin að fatta að togarajaxlar eru ekki í tískuGrin!


Vorið er hérna rétt handan við hornið!

Sko Axel farinn að spila fótbolta úti svo vorið hlýtur að vera opinberlega alveg að bresta á!  Nú í nótt fluttist Svíþjóð fram um eina klukkustund, í bæjarblaðinu mínu sögðu þeir frá því að á Íslandi og í Argentínu væri klukkan einum tíma á undan allt áriðWink .  Jóka er hérna hjá mér með stelpurnar sínar og núna labbar Natta um með kött í dúkkuvagni og kettinum finnst það bara gaman, kettirnir mínir eru nú kannski ekki eins og fólk/kettir er flestGrin .  Fer ekki í kirkju í dag en ætla að gera þennan sunnudag góðan fyrir því!

Ég alltaf heppin!

Las það í bæjarblaðinu hérna að bærinn sem ég bý í er ríkasti bær í Svíþjóð, really hef ekki tekið eftir því!  Þarf eiginlega að fara út í pólitík sem fyrst, er svo margt hérna sem mér finnst að þyrfti að breyta en vandamálið er að finna flokkinn sem hefur sömu skoðanir og égGrin . Það þyrfti til dæmis að byggja nýjan skóla hérna í hverfinu sem ég bý í og það þyrfti fleiri kennara og betri mat í skólanum!  Listinn er langur en ég held helst að það sem yfirvöld hérna vilja eyða peningum í er að byggja nýja lestarstöð sem er gott en börnin eru mikilvægari!  Nú mér finnst alltof langt þangað til ég kem heim í sumar, alltaf gott að koma heim í heiðardalinn, fara í Innbæinn að leita að rótunum, borða góðan mat og umgangast fólkið mitt Grin

Kem heim í sumar!!!!!

Já búið að ákveða daginn, sjálfur 17.júní varð fyrir valinu, næ í restina á hátíðarhöldunum í Keflavík, það eru hátíðarhöld í Keflavík á 17.júní?  Bara að grínastWink .  Það er nefnilega þannig að hann Einar litli sonur minn er að taka stúdentspróf 15.júní og það er ætlast til þess að fjölskyldan sé með þar, bara að grínast aftur, viljum alveg vera með þar, þarf víst að hafa einhverja smá veislu fyrir hann, ekkert stórkostlegt eins og á Íslandi, nei allt í hófi hér í Svíaríki, lagom är bäst eins og þeir segja hérna!  Yfir í eitthvað allt annað, heyrði orðið lúsablesi í einhverju íslensku lagi, hef ekki heyrt þetta orð í hundrað ár held ég, hef alltaf gaman af svona orðum sem ég heyri sjaldan eins og vaskahús eða sperlar eða hlandfata!  Jæja fólk fer að setja í þvottavélina núna ef þið skylduð vilja vita það!

Vaki ekki lengi lengur!

Sko rakst á stjörnuspána hennar Birnu, verð bara að skella henni með hérna!

Fiskarnir 19. febrúar - 20. mars
Þér finnst mjög gaman að sýna þig þegar völlur er á þér. Mundu að félagslega þá hefur fyrsta tilfinning fyrir fólkið mikið að segja, jafnve þótt hún sé ekki rétt. Það verður eitthvað um daður, dufl og dans í kvöld.

Birna ég veit alveg hvað þú verður að gera í kvöldWizard

Nei ég vaki sko ekkert lengi lengur, það er af sem áður var þegar maður vakti bara afþví að það var gaman og svo yfir börnunum sínum og varð ekkert mjög mikið skrýtnari við þaðDevil.  Nú uppáhaldsstaðurinn minn að vera vakandi á nóttunni er Akureyri að sumri til, að standa efst á Eyrarlandsveginum um miðja albjarta nótt og horfa yfir Pollinn og yfir í Vaðlaheiði, nothing beats that!  Það er eins og það sé alltaf gott veður á kvöldin og nóttunni á Akureyri á sumrin eða sjálfsagt allan sólarhringinn!Grin Ekki satt?


Kominn tími til!

Virkilega kominn tími til að þeir fóru að gera eitthvað í þessu hérna!  Veit ekki hvenær þeir fara að gera eitthvað í barnagiftingunum þeas þegar stelpur sérstaklega fara til sinna fornu heimalanda 14,15 og 16 ára gamlar og koma tilbaka giftar, það er ekkert hægt að gera í því þar sem þær giftu sig ekki í Svíþjóð!  Svo eru kannski ekki svo margir hérna sem vilja gera svo mikið í þessu, algengt að ýmis vandi er bara látinn viðgangast afþví að þetta eru þeirra siðir og venjur og það er náttúrulega bilun! 
mbl.is Kona dæmd fyrir að láta umskera dóttur sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blessuð blíðan hérna......!

Hæ aftur allir, hef bara verið upptekin við að hugsa um hvað ég vill fá í afmælisgjöf, not!  En ætla að gefa sjálfri mér heftibyssu í ammælisgjöf!  Fínar myndir úr Búðardal Ninna, sniðugt að byggja svona the old way!  Vorið kom bara svona alltíeinu hérna svo ég fór útí hjólageymslu og náði í hjól fyrir Evu og Ísak, hann er nú ekkert mjög spenntur fyrir að hjóla, hleypur frekarGrin .  Nú í kvöld er foreldrafundur hjá fótboltaliðinu hans Axels, á að ræða um Danmerkurferðina sem btw truflar mínar áætlanir um langa Íslandsdvöl í sumar!  Annaðkvöld er svo foreldrafundur í skólanum hjá Ívari og Evu, þar á að ræða hvernig er hægt að gera skólann að besta skóla í Svíþjóð, hmmm reka skólastjórann, skipta um kennara, ýmislegt hægt að gera!  Verður sjálfsagt bara gaman að þessu!Devil   En nú þarf ég að fara að ná í Evu í skólann, skemmtiði ykkur vel í dag og alla daga en gangið samt hægt um gleðinnar dyr, aðgát skal höfð í nærveru sálar og svo framvegis!Halo  

Skortur á vandamálum!

Ég las um mann í Stokkhólmi sem var að kvarta yfir einhverjum vesalingum sem stóðu útá götu og spiluðu tónlist sér til framfærslu og það sem hann var að kvarta yfir var að þeir kunnu ekki nógu mörg lögErrm  og að þeir spiluðu of hátt!  Ef þetta er stærsta vandamálið hjá viðkomandi, ef hann hefur ekkert annað til að kvarta yfir þá á hann bara ágætis líf!  Skil ekki svona smámunasemi, þetta blessað fólk sem stendur heilu dagana og spilar á eitthvað hljóðfæri í öllum veðrum er bara að reyna að sjá fyrir sér! Yfir í allt annað, langar til að taka stúdentspróf í íslensku, finnst eiginlega soldið asnalegt að vera bara með þetta í sænsku!  Vona bara að þeir séu ekki að nota Gísla sögu Súrssonar sem námsefni, fékk ævilangt ofnæmi fyrir þeirri bók á sínum tímaW00t

Gaman, gaman!

Það er svo gaman að þessu bloggi, ég sest fyrir framan tölvuna og les bloggið hjá ættingjum og vinum og fer alltaf að hlæja, flissa og ýla og gólaLoL !  Þetta er andleg næring af bestu gerð, gerist ekki betra!  Takk fyrir að vera til þið öll sem gerið daginn betri og skemmtilegri!  Haldið áfram að skemmta ykkur í dag!

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband