Að vera með!

Ég er voða mikill stólpi hérna í hverfinu mínuGrin  og þarf þar af leiðandi að mæta á allskonar fundi í sambandi við leikskólann og skólana hérna og er búin að vera á tveim fundum þessa viku!  Stundum hugsa ég um afhverju ég sé að eyða tíma í þetta, við foreldrar eigum endilega að koma með hugmyndir og stinga uppá hvað sé hægt að gera fyrir krakkana og hvað sé hægt að laga en svo þegar til kemur þá eru ekki til neinir peningar eða bara ekki hægt að gera neitt!  Þetta er voða þreytandi en ég hætti sjálfsagt ekkert að vera með fyrir því, ég sé hlutina stundum aðeins öðruvísi en svíarnir og það er alltaf gott ef allir hugsa ekki eins!  En yfir í uppáhaldsumræðuefnið, veðrið er bara að verða alveg frábært hérna, á að vera amk 20 stiga hiti um helgina, ekkert nema gott um það að segjaGrin  góða skemmtun í dag gott fólk!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Áfram stólpi  Ég fer ekki á fundi, sofna alltaf ef ég sit of lengi við að gera ekkert Ég reyni ekki að keppa við þig um góða veðrið, en ég held samt það eigi að vera 2 stafa tölu hiti hér um helgina

Jónína Dúadóttir, 12.4.2007 kl. 07:24

2 Smámynd: Jóhanna Pálmadóttir

Já, mínus fyrir framan þá?  Hér var 17 þegar ég vaknaði!

Jóhanna Pálmadóttir, 12.4.2007 kl. 09:33

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Aaarg

Jónína Dúadóttir, 12.4.2007 kl. 12:54

4 Smámynd: Birna Dúadóttir

Mér er heitt,ég er inni

Birna Dúadóttir, 12.4.2007 kl. 19:25

5 Smámynd: Erna Evudóttir

Vertu bara áfram inni, spáin ekkert flott hjá þér

Erna Evudóttir, 12.4.2007 kl. 19:49

6 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Spáin er flott hjá mér "á helginni" Vinna báða dagana + 1 fermingarveisla og halda líka áfram að rífa út úr stofunni þetta brúna ógeðslega sem er bæði í loftinu og 2 veggjum

Jónína Dúadóttir, 12.4.2007 kl. 20:49

7 Smámynd: Birna Dúadóttir

Líka flott spá hjá mér,vinna báða dagana.Svo að þá þarf ég ekkert að vera að spá í veðrið,sem er gott

Birna Dúadóttir, 12.4.2007 kl. 21:13

8 Smámynd: Birna Dúadóttir

Annars held ég að Erna verði næsti bæjarstjóri,eða stólpi

Birna Dúadóttir, 12.4.2007 kl. 21:15

9 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Bæjarstólpinn, það hljómar solltið eins og gamall ljósastaur eða eitthvað sem maður bindur hundinn sinn við þegar maður fer inn í búð

Jónína Dúadóttir, 13.4.2007 kl. 06:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband