Gleðilegt sumar!

Hér er bara rammíslenskt sumardaginnfyrstaveður, rok og rigning og skítkallt!  Var á skólaráðsfundi í gær og fékk að vita þar að allar áætlanir um að byggja nýjan skóla hér í hverfinu sem voru langt komnar fyrir síðustu kosningar, eru bara lagðar niður, það eru sko engir peningar til fyrir nýjum skóla hér!  Að vísu er þetta bæjarfélag rekið með risastórum plús, við erum í gróða en þá peninga ætla þeir að nota í eitthvað annað, hvað veit enginn ennCrying .  Það er sko hægt að verða pirraður yfir minna, meiri aumingjar en ég og svo framvegis!  En þar fyrir utan þá finnst mér að Sumardagurinn fyrsti ætti að vera frídagur hérna í Svíþjóð allavega fyrir okkur Íslendinga, margir aðrir minnihlutahópar fá frí á sínum hátíðisdögumGrin .  Sé alveg fyrir mér svipinn á liðinu ef ég færi fram á það í skólanum hjá krökkunum að þau þyrftu að fá frí á svona dögum, þeim finnst nefnilega að við séum ekki alvöru útlendingar, meira sænsk en nokkuð annaðWink . Spakmæli dagsins er:  Sum mistök eru alltof skemmtileg til að gera þau bara einusinniDevil

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birna Dúadóttir

Gleðilegt sumar heillin og ég bókstaflega elska spakmæli dagsins hjá þér.Bjargaði deginumMæli með því að þú farir fram á frí á þessum degi.Það er flott veður hjá mér,sól og sæla.Gæti þó verið gluggaveður,Sylvía fer í skátagönguna í dag,kalt líklega

Birna Dúadóttir, 19.4.2007 kl. 10:32

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Algjört möst að hafa frí á sumardaginn fyrsta, þó ekki væri nema vegna þess að það er yfirleitt of kalt til að fara útSpakmælið er flott og eftirbreytnivert líka

Jónína Dúadóttir, 19.4.2007 kl. 10:39

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

"Eftirbreytnivert "! Er þetta íslenskt orð ?

Jónína Dúadóttir, 19.4.2007 kl. 10:40

4 Smámynd: Birna Dúadóttir

Rammíslenskt,eða við segjum það,þær hinar eru hálfsænskar og geta ekki sagt mars

Birna Dúadóttir, 19.4.2007 kl. 10:45

5 Smámynd: Erna Evudóttir

Það er ekki til eftirbreytni að leggja fólk í einelti fyrir svísku þess

Erna Evudóttir, 19.4.2007 kl. 12:56

6 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Æi bara einelti á annari hverri síðu ! Verðum að reyna að gera betur

Jónína Dúadóttir, 19.4.2007 kl. 20:38

7 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Erna mín, þú VEIST alveg, til hvers kosningaloforð eru, er það ekki?

Jónína Dúadóttir, 20.4.2007 kl. 08:39

8 Smámynd: Birna Dúadóttir

Segðu mars segðu mars segðu mars=einelti

Birna Dúadóttir, 20.4.2007 kl. 12:15

9 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Eð hún þmámælt hún Eðna ?

Jónína Dúadóttir, 20.4.2007 kl. 13:12

10 Smámynd: Erna Evudóttir

Nei hún er einelt

Erna Evudóttir, 20.4.2007 kl. 18:14

11 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Hætt að einelta þig í bili greiið mitt, núna ætla ég að fara að einelta snjóinn hérna úti með skóflu eða hárblásara eða bara einhverju sem virkar

Jónína Dúadóttir, 21.4.2007 kl. 08:11

12 Smámynd: Erna Evudóttir

Ninna ertu kominn inn úr skaflinum eða renndiru þér bara niðrí bæ?

Erna Evudóttir, 21.4.2007 kl. 18:48

13 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Hí hí mokaði snjónum af stéttinni svo að iðnaðarmennirnir mínir gætu svínað út úti með söginni Það er svo vitlaust að gera í "handlanginu" hjá mér að það er ekki einu sinni tími til að blogga

Jónína Dúadóttir, 21.4.2007 kl. 20:01

14 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Alltaf í boltanum Erna mín ? Tengdadóttir alnöfnu minnar var að reyna að hringja í þig, þú varst ekki heima

Jónína Dúadóttir, 22.4.2007 kl. 15:41

15 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Er líka svona gott veður hjá þér eins og Jóku ?  Má ekki senda mér eitthvað af því, þurfið þið endilega að nota það alltsaman

Jónína Dúadóttir, 24.4.2007 kl. 06:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband