Sunnudagur!

Þetta er sunnudagurinn eftir kosningar á Íslandi og líka dagurinn eftir Eurovision þar sem Svíar voru ekki að vinna, í gær voru þeir ekki að vinna neitt, töpuðu líka í íshokkí fyrir Kanada svo Finnar mæta Kanada í úrslitum í HM í íshokkí, held það sé HM allavega!Grin  Jæja sumir dagar eru bara ekki sænskir dagar og ég held með Finnum í íshokkí, heja SuomiGrin .  Sunnudagar eru oftast ekki lífs míns skemmtilegustu dagar og í dag er hætta á að einum svoleiðis, veðrið býður ekki upp á neina útiveru, bara skítkalt hérna! En smá Pollýanna, ég er amk ekki timbruð, það er eitthvað til að vera þakklát fyrir!  Sumarið hlýtur að koma fyrr eða síðar!  Til hamingju með nýju þingmennina ykkarDevil .  Over and out!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birna Dúadóttir

Takk fyrir það og góðan daginn,haldiði ekki bara að mín hafi skellt sér í Júróvisjónpartý í gærkveldi.Alveg frá kl 9-10.Gaman að því,eða,,,Skítkalt hjá mér í dag líka.Eigðu góðan dag.

Birna Dúadóttir, 13.5.2007 kl. 10:39

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Mér finnst sunnudagar fínir og segi líka, að það er svo gott að vera til dæmis ekki timbruð.  Hendi í þetta smá samúð með Svíum

Jónína Dúadóttir, 13.5.2007 kl. 12:26

3 Smámynd: Erna Evudóttir

Þeir þakka örugglega, kurteist fólk

Erna Evudóttir, 13.5.2007 kl. 15:02

4 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Til hamingju með mæðradaginn í gær þú þarna súpermamma

Jónína Dúadóttir, 14.5.2007 kl. 07:04

5 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Jónína Dúadóttir, 14.5.2007 kl. 07:04

6 Smámynd: Birna Dúadóttir

Ætli hún hafi ekki munað eftir því að hún er súpermamma.

Birna Dúadóttir, 14.5.2007 kl. 08:01

7 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Hún hefur sjálfsagt gleymt því, hún er svo upptekin við að liggja uppi í sófa og gera alls ekki neitt með öll þessi börn

Jónína Dúadóttir, 14.5.2007 kl. 12:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband