Einmana

Já maður er nú eitthvað einmana hérna á blogginu, frétti af Ninnu einhversstaðar austur í sveitum á einhverju brjáluðu balli eða reyndar tveimur, hefur sjálfsagt dansað frá sér allt vit! Wizard Veit ekkert um Birnu, hef samband við Innra Eftirlitið ef hún kemur ekki bráðum til byggða! Police Jóka er sjálfsagt að elda skjaldbökusúpu sem forrétt fyrir kanínusteikina sem hún ætlar að hafa í sunnudagsmatinnDevil   Stundum finnst mér að það séu bara til tvær tegundir af fólki í heiminum, fólk sem reynir að gera sitt besta, þeas reynir að koma vel fram við aðra og gera ekki neinum neitt viljandi og svo hin tegundin sem veður yfir aðra á skítugum skónum og skilur eftir sig sviðna jörð í sinum mannlegu samskiptum og heldur þessu áfram þangað til einhver stoppar þetta lið!  En það er nú þannig að þetta er nú ekki alveg svona en það koma dagar sem mér finnst þetta og það er bara allt í lagi!  Ég er nú svo heppin að hafa kynnst meira af betri tegundinni, hef bara fullt af góðu fólki í kringum mig og það er rosalega mikils virði!  Svona í restina, það er ekki gott veður í mínum útlöndum, bara kaltCrying

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Ekki segja Jóakim frá þessu með kanínuna...

Gunnar Helgi Eysteinsson, 29.7.2007 kl. 11:23

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Komin heim af 2 harmonikkuböllum og úr brjálæðislega góðu veðri á Breiðumýri og heim í 16 stiga hita og sól það er sko gott veður í mínum útlöndum núna, skal setja smásól í umslag og senda þér

Jónína Dúadóttir, 29.7.2007 kl. 14:36

3 Smámynd: Erna Evudóttir

Takk Ninna mín, vonandi er þér ekki voða illt í fótunum eftir allan dansinn

Erna Evudóttir, 29.7.2007 kl. 15:04

4 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ég er ekki mjög mikið fyrir að dansa, tíminn fór að mestu í að hlusta á allskonar harmonikkuleikara þenja hljóðfærin sín

Jónína Dúadóttir, 29.7.2007 kl. 20:23

5 Smámynd: Birna Dúadóttir

Liðið þarna með sviðnu jörðina,bara að skjóta það straxHmm illa sagt,kannski.Amk ætti maður ekkert að vera að umgangast svoleiðis fólk.Dettur stundum fyrir tærnar á manni,á maður þá ekki að forða sér.Segir Bía litla

Birna Dúadóttir, 30.7.2007 kl. 18:53

6 Smámynd: Erna Evudóttir

Jú þegar maður er búinn að vaða aðeins yfir það á grútskítugum klofstígvélum!

Erna Evudóttir, 30.7.2007 kl. 22:47

7 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Hverja ?

Jónína Dúadóttir, 30.7.2007 kl. 23:08

8 Smámynd: Birna Dúadóttir

Ninni minn,vonda fólkið

Birna Dúadóttir, 30.7.2007 kl. 23:20

9 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Já, ég kveikti allt í einu og ég er hjartanlega sammmmmmmála

Jónína Dúadóttir, 31.7.2007 kl. 07:05

10 Smámynd: Birna Dúadóttir

Eða bara að "gefa þeim blóm"

Birna Dúadóttir, 31.7.2007 kl. 16:09

11 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ekki blóm, kaktus ! Segðu það með blómum þú veist.......

Jónína Dúadóttir, 31.7.2007 kl. 18:20

12 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Þarf nú að fara að láta lýsa eftir þér líka ?

Jónína Dúadóttir, 3.8.2007 kl. 07:45

13 Smámynd: Birna Dúadóttir

Ok þá byrjar það,Eeeeernaaa hvaaaar eeeertuuu(kallaði hún eins hátt og hún gat,með angistarsvip á andlitinu)

Birna Dúadóttir, 3.8.2007 kl. 10:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband