Sjóræningjar!

Finnst athyglisvert að lesa um að nýi þjóðaratvinnuvegur Sómalíu sé sjóránCool  Þekki þó nokkuð marga Sómali og þeir eru nokkuð friðsamir en neyðin kennir naktri konu að spinna og Sómölum að sigla út á pínulitlum bátum og ræna stærsta olíuskipi í heimiBandit Annað sem ég hef komist að, bílar eru ekki góðar hugmyndasmiðjur, þegar ég bjó í Svíaríki ferðaðist ég mest í strætó eða bara gangandi og mínar bestu hugmyndir, samkvæmt sjálfri mér amk, fékk ég í strætó en núna skeður bara ekkert þegar ég er á leiðinni í vinnuna, nema hvað ég er hissa á hvernig fólk keyrir en það virðist nú bara vera þjóðaríþrótt hérna að keyra eins og fíflAngry  En yfir í annað, er að fara á tónleika í kvöld, Bjartsýnisblús á Norðfirði, verður örugglega alveg frábært, gef skýrslu um það á morgunSmile  Jæja þarf að fara að kaupa nammi og svo á markað, var að hugsa um að gefa Rauða Krossinum notuð spariföt ef það er til eitthvað svoleiðis hérSmile

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ætlarðu að gefa allar pilsdraktirnar þínar ?

Jónína Dúadóttir, 22.11.2008 kl. 12:21

2 Smámynd: Birna Dúadóttir

Gefðu þeim loðfeldina tvo og sjáðu ekki eftir því Skemmtu þér fyrir mig líka á blúsnum...ÖFUND

Birna Dúadóttir, 22.11.2008 kl. 12:35

3 Smámynd: Erna Evudóttir

Allar draktirnar farnar og loðfeldirnir líka fer á blúsinn ef Vegagerðin gefur grænt ljós, hefur nebblega snjóað hér í dag og ekkert víst hvort Oddsskarðið er fært gestum og gangandi, hvað þá keyrandi Gæ að essu

Erna Evudóttir, 22.11.2008 kl. 17:57

4 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Fórstu ?

Jónína Dúadóttir, 23.11.2008 kl. 05:42

5 Smámynd: Erna Evudóttir

Heldur betur, kom ekki heim fyrr en um miðnætti, skemmtanafíkill fram í fingurgóma

Erna Evudóttir, 23.11.2008 kl. 11:41

6 Smámynd: Birna Dúadóttir

DjammhundurÉg fór á Deap Jimmy í gærkvöldi,hrikalega hressandi

Birna Dúadóttir, 23.11.2008 kl. 12:30

7 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Sukkarar

Jónína Dúadóttir, 23.11.2008 kl. 12:48

8 Smámynd: Birna Dúadóttir

Hefurðu eitthvað heyrt í Jóku Pálmadóttir Svedjehed?

Birna Dúadóttir, 25.11.2008 kl. 21:28

9 Smámynd: Erna Evudóttir

Nebb, var að hugsa um að hringja í hana í gærkvöldi en sofnaði bara

Erna Evudóttir, 26.11.2008 kl. 07:07

10 Smámynd: Birna Dúadóttir

Ég lenti á sænskri símadömu í fyrrakvöld.Spurning um að þú smessir á mig númerið hennar.Einhver vitleysa í gangi greinilega

Birna Dúadóttir, 26.11.2008 kl. 07:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband