Góðan daginn!

Það er núna sem ég ætla að vera opin og einlæg, viðurkenna þetta bara, mér er illa við bíla, þarna kom það, hef verið að reyna að vera í afneitun á þetta en nei það virkar ekkiTounge  Nú svo finnst mér Íslendingar vera algjörir hellisbúar í sambandi við umhverfismál, svo langt á eftir að það er ekki fyndiðAngry  Lengi tekur sjórinn við og svo framvegis er greinilega alveg í gangi ennþáErrm  En svona að lokum, Karlavagninn er mín Madelenekaka, var alveg að upplifa það í gærkvöldi, svo fallegur himininn hérna í fámenninu í gærkvöldiSmile  Gerum þennan laugardag góðanSmile

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ekki segja mér að það sé ennþá verið að henda ruslinu í sjóinn þarna í fámenninuOg þetta með bílana... ég var búin að fatta það... það getur bara verið ein ástæða fyrir öllu labbinu... eða hvað ? 

Jónína Dúadóttir, 14.2.2009 kl. 09:51

2 Smámynd: Erna Evudóttir

Oh vissi ekki að ég væri svona gegnsæ, en what the heck Sko það er asbest í jörðu hérna, kannski bara hérna við húsið mitt, vatnsleiðslurnar eru vonandi ekki úr asbesti, kannski bara asbest utanum þær

Erna Evudóttir, 14.2.2009 kl. 10:46

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Asbest..... það hræðilega eitraða efni var notað mikið sem einangrun... ætti að vera búið að skipta um það fyrir löngu... og ef það er ekki búið, þá bara ekki seinna en strax ! Eruð þið búin að tala við bæjar/sveitarstjórnina ?

Jónína Dúadóttir, 14.2.2009 kl. 10:57

4 Smámynd: Erna Evudóttir

Já það á sko að fara í vatnsveituframkvæmdir hérna en held einhvernveginn að asbestið verði bara skilið eftir ofaní jörðinni, spooky Ætla að reyna að finna eitthvað útúr þessu asap

Erna Evudóttir, 14.2.2009 kl. 11:32

5 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Af stað nú, ég stend með þér

Jónína Dúadóttir, 14.2.2009 kl. 13:13

6 Smámynd: Birna Dúadóttir

Þetta eru alltsamanasnar Guðjón

Birna Dúadóttir, 14.2.2009 kl. 15:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband