Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2010

Andlaus og atvinnulaus en allsekki vitlaus :)

Er eitthvað andlaus þessa dagana, andinn svífur ekki yfir mínum vötnum svona as we speak LoL hann hlýtur nú að fara að láta sjá sig með hækkandi sól og öllu því!  Já ég bætist opinberlega í skara hinna atvinnulausu á mánudaginn, er bara ennþá alveg sama um það, þetta er nú meira djöf..... kæruleysið í konunniDevil En sé enga ástæðu til að gera mér upp einhverjar áhyggjur yfir því, nóg er nú samt sem þarf að fá að flækjast í höfðinu á mér og ekki er það nú allt gáfulegtLoL En allavega þá er ég að hugsa um að drífa mig á tónleika á Eskifirði á morgun, er svolítið að mygla hérna, orðið alltof langt síðan ég hef farið eitthvað og lyft mér upp eins og það er kallaðLoL En núna er víst mest upplyfting í að vaska upp, einhver hefur verið voða duglegur að sleppa því ansi lengi Angry haldiði bara áfram að hafa gaman að þessu, það ætla ég að gera LoL

Greyið :)

Hlýtur að vera rosalegt að missa svona af mágkonu sinniLoL ég vona bara að henni sé boðið í fjölskylduveislur og svoleiðis LoL Þetta er nú bara sorgleg afsökun, ef honum sést yfir fólk í fjölskyldu sinni, þá er hann nú ekkert mjög klárWoundering
mbl.is Valtýr: „Mér hreinlega yfirsást þetta"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Go with the flow :)

Það var sko þetta með ræktina, hehe þetta er ennþá að hljóma illa, bæði þegar ég segi það og skrifaLoL En allavega þá ætla ég að byrja á þessum ósköpum um mánaðarmótin, það er á hreinuLoL þið megið alveg minna mig á þetta ef það lítur út fyrir að ég sé eitthvað að klikka á þessuWink Var minnt á það í dag hvað alkóhólismi getur verið hættulegur sjúkdómur, eins gott að vera meðvitaður um það, það er jafn stutt í fyrsta glasið fyrir mig eins og alla aðra alka !!!!! Fer að sjá fyrir endann á vinnunni, sem er gott, er ósköp ánægð  með þaðSmile þegar einhver hurðafjandi lokast opnast oftast einhver önnur hurð í staðinnLoL Hej och hopp LoL

Þar kom að því :)

Já það er nebbnilega það, ÉG ER AÐ FARA AÐ BYRJA Í RÆKTINNILoL omg þetta lítur líka illa út á prentiShocking En þannig er mál með vexti að ég asnaðist til læknis því ég hef verið að versna í öxlinni sem sprautað var í sællar minningar, NOTAngry Nú doktorinn vildi ekki sprauta aftur í öxlina, hefði ekki leyft honum það hvort eð er, en hann SAGÐI mér mjög kurteislega samt að ég ætti að fara í ræktina og þjálfa þessa vöðva sem eru að bögga mig, þannig myndi ég losna við verkinn, hmmm ég í ræktina, en hann þykist hafa vit á þessu, ok ég hef ekki verið í læknisfræði svo ég er næstum því að trúa honumLoL Nú þar sem ég veit hvernig ég virka þá ákvað ég að skrifa þetta hérna, ég er alveg viss með að reyna að koma mér undan þessuLoL Ég fór örugglega í ræktina í korter fyrir fimmtán árum síðan svo þetta ætti nú að vera fljótt að koma, heheheheSmile Já já annars er ég bara flissandi eins og fíbbl og hef gaman að þessu :) Soldið fyndin fréttin um kvensama Íslendinginn í Thailandi, ætli hann sé að NORÐAN ?Devil LoL LoL

Kaffi m rjóma og Hank Williams :)

Er að hlusta á hann, bara flotturSmile Jóku er að takast að sannfæra mig um hversu stjörnuspár eru ábyggilegar, hehehehe LoL Er eiginlega orðin atvinnulaus, eða sko já er ekki að vinna en fæ laun samt, það truflar mig nú sama sem ekkertLoL Er ekkert að hafa áhyggjur af þessu atvinnuleysi, þar er nú frystihús hérnaWink Er bara að skoða skóla og ýmislegt annað, þetta reddast alltsaman Smile Fer ekki að koma vor bráðum líka, held það bara LoL Mér eru allir vegir færir, nema það sé ófært, hehehe mín fyndin í kvöldLoL Over and out, but I will be back LoL

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband