Þrældómur :))))
5.7.2010 | 23:51
Já þetta er nú meira púlið að sitja allan daginn við tölvu, hehehehe NOT
Fór um helgina með Ívar og Aleksander i flugið til Köben, fór á Glerártorg, hitti bara fólk hérna að austan þar
Var hjá mömmu, fór til Ninnu, drakk kaffi, át súkkúlaði og talaði skít
Fór svo á góðan fund á sunnudagsmorguninn með góðu fólki
Kom svo heim í gærkvöldi og tók Evu til fyrir sumarbúðirnar, það voru nú hálfgerð geimvísindi, hún fór svo þangað í morgun, kemur heim á föstudaginn
Svo afþví að ég er svona aumingi þá er ég að fara í röntgen á morgun á Norðfirði, á eiginlega að fara í svona sneiðmyndadæmi en sú sjoppa lokar víst á sumrin á Akureyri
Verð að vinna amk út þennan mánuð, sem er gott
Þetta var nú alveg óskaplega óintressant lesning þetta blogg mitt í dag, ja hérna en það er stundum þanneigin bara á austfirsku
Over and out
Athugasemdir
Nei þetta er mjög interressant hjá þér... ég geri sko ekkert betur en þetta
Jónína Dúadóttir, 6.7.2010 kl. 11:33
Hmm hvað á að fara að sneiða (mynda) af þér ?
Birna Dúadóttir, 6.7.2010 kl. 12:27
Já hún má nú við því......... eða alls ekki
Jónína Dúadóttir, 6.7.2010 kl. 14:49
Lét sneiða aðeins af bakhlutanum var orðin soldið slubbvaxin fannst mér
Erna Evudóttir, 6.7.2010 kl. 21:04
Jónína Dúadóttir, 7.7.2010 kl. 00:20
Svo svo að núna ertu þá eins og ný-skorin rós Hlýtur nú að vinna eitthvað út á það
Birna Dúadóttir, 7.7.2010 kl. 13:19
Takk fyrir kveðjuna af fundinum góða.
Verð að segja að mér finnst nú lítið auka á þér. Þannig að blessuð vertu ekki að láta sneiða neitt af þér.
Anna Guðný , 7.7.2010 kl. 17:20
Hehe já læt það nú eiga sig að láta taka ehv af mér var bara að láta gá hvort ég væri nokkuð að ná mér í brjósklos, vá en asnalegt orð læt taka af mér fótinn við öxl held ég bara
Erna Evudóttir, 7.7.2010 kl. 19:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.