Íþróttir!!!!
20.2.2007 | 07:25
Fólkið í minni fjölskyldu er orðið algjörir íþróttaálfar, hef áhyggjur af þessu. Það er vikufrí í skólanum hjá krökkunum og það er brjálað að gera, í gær var Ívar á skíðum allan daginn, í dag er Axel að keppa í fótbolta og á morgun fer hann á skíði! Ívar er svo að keppa í fótbolta á föstudaginn og á laugardaginn eru hann, Eva og Einar með æfingu í Aikido. Ég hef aldrei verið mikið fyrir íþróttir, nema þá glasa og flöskulyftingar hérna í eina tíð, hleyp ekki ef ég er með réttu ráði en börnin mín hafa náð í þennan áhuga einhversstaðar þegar ég sá ekki til! Núna ætla ég að hætta þessu og fara að horfa á Axel spila fótbolta
Athugasemdir
Gangi þeim öllum vel Ert þú ekki með tennisolnboga ? Eru það ekki íþróttameiðsl ? Ég stunda kannski ekki í þróttir en ég má eiga það að ég tek sjálf utan af banönum mínum
Jónína Dúadóttir, 20.2.2007 kl. 07:34
Jú tennisolnbogarnir aðalástæðan fyrir því að ég stunda ekki íþróttir að neinu gagni
Erna Evudóttir, 20.2.2007 kl. 07:36
Mig grunaði það
Jónína Dúadóttir, 20.2.2007 kl. 09:31
Heyrðu kona,ekkert að gera lítið úr gömlum íþróttameiðslum hérna.'Eg man ekki betur en að Lystigarðurinn væri íþróttavöllur okkar tíma,ég á myndir því til sönnunar,Hekluúlpur og allt.Ef ég væri svona nörd eins og sumir þá myndi ég geta sett eina með.Síðar
Birna Dúadóttir, 20.2.2007 kl. 19:33
Með hverjum ert þú í liði Erna ?
Jónína Dúadóttir, 21.2.2007 kl. 13:12
Ég er ma í Framsóknarflokknum og Birna ekki setja neinar myndir hérna sem sýna afrek mín í íþróttum, allir hinir fá bara minnimáttarkennd og þurfa áfallahjálp
Erna Evudóttir, 21.2.2007 kl. 14:54
Ég lofaði að segja engum´ða, en Birna er ekkert flinkari að senda myndir heldur en ég . Svo á hún líka "KÆRASTA" og hefur engan tíma til að pæla í neinu svoleiðis
Jónína Dúadóttir, 21.2.2007 kl. 15:20
Áfram KA!!!
Jóhanna Pálmadóttir, 21.2.2007 kl. 17:08
Uss ég á engan kærasta,mamma er orðin hrædd um að ég gangi aldrei út
Birna Dúadóttir, 21.2.2007 kl. 17:51
Hafðu engar áhyggjur ég er búin að segja henni það Hún vill fá að vita hverra manna hann er Ég sagði henni að hann væri miðaldra kanadískur lögregluþjónn
Jónína Dúadóttir, 21.2.2007 kl. 18:28
Og með skalla, ýstru og alskegg, algjör hunk
Erna Evudóttir, 21.2.2007 kl. 18:51
Þið eruð asnarÉg er með svo mikla fordóma út í útlendingana,að ég held mig bara við Lögreglu og Tollstjóra embættið.svona ef ég þarf á að halda.
Birna Dúadóttir, 21.2.2007 kl. 19:57
Segir sannur góðkunningi lögreglunnar
Erna Evudóttir, 21.2.2007 kl. 23:35
Úúú fast skotið
Jónína Dúadóttir, 22.2.2007 kl. 07:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.