Ammmmmæli!
22.2.2007 | 08:44
Það er þessi dagur í dag, eini dagurinn á árinu sem ég upplifi hvað ég er eiginlega gömul! Einar minn á afmæli og í dag er hann 19! ára! Á hverju ári fæ ég hálfgert sjokk, er virkilega svona langt síðan hann fæddist á skátadaginn meira að segja! Birna kom alla leið inná fæðingarstofuna í jakka og öllu saman, frjálslegt á fæðingardeildinni á Akureyri! Litlu fötin sem Ninna prjónaði á hann voru næstum of stór á hann þegar við fórum heim! Á þeim árum var maður bara held ég heila 5 daga á sjúkrahúsinu eftir fæðingu, hérna í Svíþjóð hef ég bara verið svona lengi á sjúkrahúsi eftir keisara! En það verður nú engin veisla í dag því hann er lasinn kallgreyið með hita, hósta og beinverki, hefur ekki orðið svona lasinn í mörg ár! En þetta gengur yfir eins og allt annað! Vona að þið eigið öll góðan dag í dag, það ætla ég að eiga þrátt fyrir "snjóstorminn" sem geisar hérna
Athugasemdir
Til hamingju Einar Birgir Allar bestu afmælis og bataóskir Þó skömm sé frá því að segja þá man ég bara eftir 2 afmælisdagsetningum sistkynabarnanna : Einar Birgir 22.febrúar og Halldór Þórir 6.janúar. Til hamingju með drenginn unga kona Bíddu þangað til hann verður þrítugur, þá ert þú fyrir löngu farin að undrast það, hvað börnin þín eru orðin gömul, þú sem ert svo ung ennþá
Jónína Dúadóttir, 22.2.2007 kl. 09:17
úff er hann orðinn svona gamall...........ég hef ekkert elst síðan ég sá hann síðast.........þú hefur ekkert elst er það?
anyways til hamingju með prinsinn hahahahaha
Luv........Kaffikelling
Kaffikelling, 22.2.2007 kl. 12:18
Til hamingju með stráksa,vonandi að honum fari að batna.Ég man enn hvað ég var hissa þegar þær sendu mig bara inn til ykkar.Voða frjálslegt.Hann var sætur korters gamall og bætir bara í það með árunum,bið að heilsa sjúklingnum
Birna Dúadóttir, 22.2.2007 kl. 12:28
Ég ætla ekkert að senda hamingjuóskir til stráksa, hringi frekar í hann á eftir...en til hamingju með að vera orðin ellismellur
Jóhanna Pálmadóttir, 22.2.2007 kl. 14:06
Mikið rétt ég hef ekki elst neitt að ráði, nota td sama númer af buxum núna eins og ég gerði þegar ég var 16, veit reyndar ekki hvort það er nokkuð geysilega gott mál en er að reyna að sjá eitthvað jákvætt við að vera svona grönn!
Erna Evudóttir, 22.2.2007 kl. 22:21
Til hamingju Einar (Ég hringji ekki)
Gunnar Helgi Eysteinsson, 23.2.2007 kl. 16:22
Það góða við að vera svona grönn:þú kemst leiðar þinnar án þess að rekast á fólk,það er pláss fyrir þig í strætó,þú verður seint kölluð brussuleg og líklega ekki heldur feit.Þú getur farið í feluleik og valið þér ljósastaur til að fela þig á bak við ofl ofl.Þetta er amk mín gleðilega reynsla
Birna Dúadóttir, 23.2.2007 kl. 17:27
Þið eruð að sjálfsögðu boðin í ammmmælið mitt á morgun
Birna Dúadóttir, 23.2.2007 kl. 17:35
Komdu nú undan þvottavélinn Birna mín, feluleiurinn er búinn
Jónína Dúadóttir, 24.2.2007 kl. 12:33
þetta átti auðvitað að vera "feluleikurinn" og ég játa mig sigraða, ég verð að nota gleraugun við tölvuna
Jónína Dúadóttir, 24.2.2007 kl. 12:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.