Kem heim í sumar!!!!!
19.3.2007 | 11:11
Já búið að ákveða daginn, sjálfur 17.júní varð fyrir valinu, næ í restina á hátíðarhöldunum í Keflavík, það eru hátíðarhöld í Keflavík á 17.júní? Bara að grínast
. Það er nefnilega þannig að hann Einar litli sonur minn er að taka stúdentspróf 15.júní og það er ætlast til þess að fjölskyldan sé með þar, bara að grínast aftur, viljum alveg vera með þar, þarf víst að hafa einhverja smá veislu fyrir hann, ekkert stórkostlegt eins og á Íslandi, nei allt í hófi hér í Svíaríki, lagom är bäst eins og þeir segja hérna! Yfir í eitthvað allt annað, heyrði orðið lúsablesi í einhverju íslensku lagi, hef ekki heyrt þetta orð í hundrað ár held ég, hef alltaf gaman af svona orðum sem ég heyri sjaldan eins og vaskahús eða sperlar eða hlandfata! Jæja fólk fer að setja í þvottavélina núna ef þið skylduð vilja vita það!
Athugasemdir
Hæ hó jibbi jey,það verður amk haldið upp á það að þú kemur,líst mér nú vel á þig og þína kona.Það eru hátíðahöld hér í nepjunni á 17 júní,ekkert stórt,en þessar hefðbundnu biðraðir í eitthvað sem setur hina íslensku meðal fjölskyldu á hausinn.Ég fer ennþá niður í vaskahús,elda sperla,þekki einn og einn lúsablesa,en hef ekki þurft á hlandfötunni að halda lengi.Nota það orð reyndar stundum um fólk,svona með sjálfri mér ef mér ofbýður alveg.Og mér er alveg sama hvað hver segir,ég panta mér sendlabíl,ef ég þarf.
Birna Dúadóttir, 19.3.2007 kl. 12:14
Hvað er að því að panta sendlabíl ? Ég fer ekki niður í vaskahús, þvottavélin er sko inni á baði og það vill svo til að það verða sperlar í kvöldmatinn. Erna mín við höldum upp á annan í 17.júní þegar þið komið norður
Jónína Dúadóttir, 19.3.2007 kl. 13:04
Sendlabíll, líka eitt af þessum frábæru orðum, nú þegar við vorum í æsku hétu ruslatunnurnar öskutunnur og maður bjó til kransa úr sápublómum
Erna Evudóttir, 19.3.2007 kl. 13:23
Ef sendlabíll heitir ekki sendlabíll hvað heitir sendlabíll þá ? Og ég gerði krans ur sápublómum austur á landi í fyrrasumar, skal finna þau handa þér þegar þú kemur
Jónína Dúadóttir, 19.3.2007 kl. 13:50
Hitti Auði á Glerártorgi í gær ! Hún lítur virkilega vel og ánægjulega út ! Alveg að verða komið 1 og 1/2 ár núna
Jónína Dúadóttir, 19.3.2007 kl. 13:54
Ég kem til þín 14. þá, var víst ætlast til að ég og mín fjölskylda værum viðstödd þegar elsti fóstursonur minn tekur stúdentinn...algjör skylda eða hvað
Jóhanna Pálmadóttir, 19.3.2007 kl. 16:29
Gott hjá Auði og jú Jóka það er skylda að mæta með skiltið fyrir utan skólann argandi og gargandi þegar Einar litli kemur út! Verður gaman af því!
Erna Evudóttir, 19.3.2007 kl. 18:15
Hvar ætlið þið annars að gista hér fyrir norðan ? Þú veist að við erum með "dálítið" stórt hús
Jónína Dúadóttir, 20.3.2007 kl. 08:17
Var að hugsa um hvort "rýmið" sem við vorum í þegar Ingi fermdist væri ekki laust, á svo góðar minningar þaðan, verð bara að ná í Kristján svo þetta verði alveg eins og þetta var, nei bara smá jók, en er ekki allt fullt hjá þér á sumrin?
Erna Evudóttir, 20.3.2007 kl. 12:11
Æi RÝMIÐ ! Ég var alveg búin að gleyma því! Á ég að panta fyrir ykkur ? Nei Erna mín,það er bara fullt hjá mér ef ég vil það sjálf, ég ræð nefnilega öllu í þessu gistiheimili, ég á það
Jónína Dúadóttir, 20.3.2007 kl. 12:18
Ja sko ef rýmið og Kristján eru upptekin þá gisti ég gjarnan hjá þér, þar sem þú átt þetta gistiheimili alveg ein og ræður öllu. Takk fyrir það!
Erna Evudóttir, 20.3.2007 kl. 16:09
'eg er búin að hringja í Kristján,hann varð voða glaður og staðfesti pöntun á rýmið
Birna Dúadóttir, 20.3.2007 kl. 18:48
Takk þú ert engill í manns/konulíki! Kemur ekki Örns á ball með okkur á Oddvitann eða var það hitt pleisið, minnið er eitthvað að bregðast mér
Erna Evudóttir, 20.3.2007 kl. 19:00
Held hann verði haltur á öllum,eða þessum tveimur sem eru nothæfirEn trúðu mér ég mæti
Birna Dúadóttir, 20.3.2007 kl. 19:01
Gott treysti á þig
Erna Evudóttir, 20.3.2007 kl. 19:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.