Ég alltaf heppin!
20.3.2007 | 18:58
Las það í bæjarblaðinu hérna að bærinn sem ég bý í er ríkasti bær í Svíþjóð, really hef ekki tekið eftir því! Þarf eiginlega að fara út í pólitík sem fyrst, er svo margt hérna sem mér finnst að þyrfti að breyta en vandamálið er að finna flokkinn sem hefur sömu skoðanir og ég
. Það þyrfti til dæmis að byggja nýjan skóla hérna í hverfinu sem ég bý í og það þyrfti fleiri kennara og betri mat í skólanum! Listinn er langur en ég held helst að það sem yfirvöld hérna vilja eyða peningum í er að byggja nýja lestarstöð sem er gott en börnin eru mikilvægari! Nú mér finnst alltof langt þangað til ég kem heim í sumar, alltaf gott að koma heim í heiðardalinn, fara í Innbæinn að leita að rótunum, borða góðan mat og umgangast fólkið mitt
Athugasemdir
Beint í politikina með þig kona,þú átt heima þar.Stofnar bara Ernu flokkinn,með þínum málum
Birna Dúadóttir, 20.3.2007 kl. 19:03
Það er góð hugmynd, skoða það
Erna Evudóttir, 20.3.2007 kl. 19:05
Þá skal ég gerast flokksbundinn Ernisti
Jónína Dúadóttir, 20.3.2007 kl. 21:08
Ég er nefnilega alveg sammála þér, ennþá Hef heldur aldrei fundið flokk sem er alveg sammála mér í öllu
Jónína Dúadóttir, 20.3.2007 kl. 21:22
Eigum við svo að gera byltingu
Erna Evudóttir, 20.3.2007 kl. 21:47
Þú verður að hætta þessum byltum kona,það verður bara barn úr
Birna Dúadóttir, 20.3.2007 kl. 22:12
Auðvitað eigum við að gera byltingu og svo er auðvitað betra að hafa sem flesta í flokknum, er það ekki
Jónína Dúadóttir, 21.3.2007 kl. 07:43
Voruð þið búnar að lesa um konuna sem fór í meðferð og" lauk henni með fullkomnum árangri" Er ég alveg græn ? Ég hef alltaf staðið í þeirri meiningu að árangurinn gæti alls ekki komið í ljós nema með tímanum !
Jónína Dúadóttir, 21.3.2007 kl. 10:04
Hey, ég er nú flokksritari í nýlega stofnuðum flokki sem er enn að búa til stefnuskrá, bara ganga með! www.invandrarpartiet.se
Jóhanna Pálmadóttir, 21.3.2007 kl. 12:38
Skulle vi ikke bara vandra med Það sem ég skil á síðunni, líst mér bara vel á
Jónína Dúadóttir, 21.3.2007 kl. 12:54
Ég bara vandra og föndra
Birna Dúadóttir, 21.3.2007 kl. 18:51
Ég ætla ekki að gera sjálfri mér það,að spyrja, við hvað þú ert að föndra
Jónína Dúadóttir, 21.3.2007 kl. 23:03
Sko,ég er svo blessunarlega laus við að hafa einhvern snefil af föndurgenum í mér(þetta hlýtur að vera í genunum)og fyrir það er ég ævinlega þakklát.Svo er það spurningin,hvenær er maður að föndra og hvenær er maður ekki að föndra.
Birna Dúadóttir, 21.3.2007 kl. 23:31
Jamm, það var einmitt eitthvað í þessa áttina sem ég vildi ekki fara í huganum
Jónína Dúadóttir, 22.3.2007 kl. 10:10
Hey, það eru börn hérna!!!
Jóhanna Pálmadóttir, 22.3.2007 kl. 22:07
Takk fyrir það, alltaf gott að borða þegar ég þarf ekki að elda eða þvo upp
Erna Evudóttir, 23.3.2007 kl. 07:02
Annars ekki ?
Jónína Dúadóttir, 23.3.2007 kl. 22:05
Nei ég hef afskaplega lítið gaman af að borða, geri það af því að ég veit að ég á að gera það
Erna Evudóttir, 24.3.2007 kl. 07:20
MMM ég fékk mér snarl á sjúkrastöðinni í gærkvöldi,alveg yndislegt,eins og ég taldi mig muna.
Birna Dúadóttir, 24.3.2007 kl. 09:12
Ég eldaði Vilko ávaxtasúpu í gærkvöldi, nei nei, "Kjúkling a la Jenni" , hann klikkar ekki
Jónína Dúadóttir, 24.3.2007 kl. 09:50
Kl 12 að miðnætti að staðartíma í Kef,steikti ég egg og beikon.MMM kemur alveg í staðin fyrir 6
Birna Dúadóttir, 24.3.2007 kl. 15:27
Ég eeelska að borða góðan mat, m.a.s. þó ég þurfi að elda hann sjálf (þá verður hann líka alveg eins og ég vil hafa hann)! PS: Lifrabollurnar voru góðar, Nathalie sat og stundi yfir þeim...Mmmmm!!!
Jóhanna Pálmadóttir, 24.3.2007 kl. 19:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.