Kokteilsósa!
25.4.2007 | 19:50
Mig langaði svo rosalega í kokteilsósu núna í kvöld að það var næstum því ekki fyndið
! Þetta kemur ekki oft fyrir guði sé lof, slæm tilfinning sérstaklega þar sem ég bý í landi sem framleiðir engar góðar sósur og eiginlega engan góðan mat nema þá kebabpizzu sem er eins og allir vita ekki sænsk að uppruna! Ég verð stundum alveg hræðilega þreytt á matnum hérna eða öllu heldur skortinum á honum! Pylsur í öllum stærðum og gerðum eru svosem kúl fyrsta árið hérna og ég tala nú ekki um skortinn á nýjum fiski
. Nú þó svo ég hafi ekki fæðst með typpi þá finnst mér ekki gaman að elda mat, mér finnst sjoppufæði fínn matur, borða helst ekki grænmeti ef ég kemst hjá því og vill gjarnan hafa matinn minn allan útvaðandi í fitu! Geri mér grein fyrir að þetta samræmist ekki þeirri mynd sem margir hafa af KONU á mínum aldri sem á svona mörg börn en mér gæti ekki verið meira sama, finnst bara tímasóun að velta því fyrir mér hvað öðrum finnst um hvernig ég á að vera. Mér hefur til dæmis alltaf fundist alveg hræðilega leiðinlegt að fara með börnin mín á leikvöll þegar þau voru lítil, tók alltaf með mér eitthvað að lesa ef ég villtist á leikvöll, hinir foreldrarnir sátu í sandkassanum með krökkunum sínum og fannst ég örugglega vera alveg glötuð! Enn og aftur var mér alveg sama, djöfuls kæruleysi er þetta í konunni
! Spakmælið í dag er: Ekki fresta neinu til morguns sem þú getur látið einhvern annan gera í dag
Athugasemdir
Hmm skil þetta mætavel með kokteilsósuna og reyndar matseðilinn almennt.Annars er uppáhaldið mitt þessa dagana kjúklingasallat og það þýðir slatti af grænmeti,jammíGrr ég hugsa með sömu kæti til minna barna-sandkassa daga og þú
Birna Dúadóttir, 25.4.2007 kl. 23:13
Ef við ættum að vera að hafa áhyggjur af því hvað öðrum finnst, kæmum við engu öðru í verk um ævina Man vel og skil alveg, þetta með leikvöllinn, bæti við það jólaböllum og réttardeginum Passaðu kolesterólið Erna mín
Jónína Dúadóttir, 26.4.2007 kl. 06:32
Æts ég held ég hendi í þetta föndrinu,oj oj oj
Birna Dúadóttir, 26.4.2007 kl. 07:18
Haha ég gleymdi gærdeginum,talandi um að vera komin á aldur,til hamingju með að vera til sæta
Birna Dúadóttir, 26.4.2007 kl. 12:50
Takk fyrir er að njóta þess
Erna Evudóttir, 26.4.2007 kl. 12:58
Úbbasía Erna mín innilegar hamingjuóskir með 44 ára og eins dags ammmmælið
Jónína Dúadóttir, 26.4.2007 kl. 20:09
Takk fyrir það, er enn að njóta þess að vera til
Erna Evudóttir, 26.4.2007 kl. 22:06
Ertu ennþá að njóta ?
Jónína Dúadóttir, 28.4.2007 kl. 06:43
Gvuð, mér finnst svo gaman að föndra með stelpunum, svona í alvöru sko! Þetta með leikvöllinn er ég samt að skilja, en stundum er samt gaman að skella sér í rennibrautina, ef hún er nógu andskoti stór!
Gæti drepið fyrir kokteilsósu, hamborgarasósu og ýmislegt annað íslenskt sem mig dauðlangar í. Finnst samt mjög gaman að elda góðan mat og ennþá skemmtilegra að borða hann! Mmmm...heimatilbúin rjómasósa td, með kjöthleifinum sem ég elda stundum...namminamm!
Jóhanna Pálmadóttir, 28.4.2007 kl. 11:55
Af hverju eruð þið ekki löngu komnar yfir 100 kólóin
Jónína Dúadóttir, 28.4.2007 kl. 13:11
Genin
Erna Evudóttir, 28.4.2007 kl. 13:44
Eigum við ekki að staldra aðeins við hérna og rifja upp svo sem eins og eina staðreynd í ættfræði fjölskyldu okkar : Ég er systir ykkar ! Eru genin mín ekki eins og genin ykkar ? Ha?
Jónína Dúadóttir, 28.4.2007 kl. 14:10
Hm.... kannski eruð þið bara með orma
Jónína Dúadóttir, 28.4.2007 kl. 14:13
Kannski erum við bara með sænska orma, hef ekki hugsað út í það
Erna Evudóttir, 28.4.2007 kl. 15:03
Borðið þér orma frú Norma?Þið eruð eðal
Birna Dúadóttir, 28.4.2007 kl. 15:39
Já, við erum með krakkaorma!
Jóhanna Pálmadóttir, 28.4.2007 kl. 16:06
Takk, takk, takk, takk!
Erna Evudóttir, 29.4.2007 kl. 06:53
Er enginn að hafa áhyggjur af kólesterólinu nema ég ?
Jónína Dúadóttir, 29.4.2007 kl. 12:40
Nei sko ég á bara að fitna sagði mér læknir, en honum fannst líka að ég ætti að hlaupa í skólann, ég er sko ekkert í ræktinni
Erna Evudóttir, 29.4.2007 kl. 14:16
Af hverju segir hann þér að hlaupa,ætlar hann að elta þig
Birna Dúadóttir, 29.4.2007 kl. 18:10
Er hann lítill og þybbinn ? Sé það fyrir mér, Erna á harðaspretti með skólatöskuna dinglandi og hann á eftir með....... hlustunarpípuna dinglandi Veit alveg að þið hélduð að ég ætlaði að vera dónaleg
Jónína Dúadóttir, 30.4.2007 kl. 08:33
Nei hefði aldrei látið mér detta í hug að þú hefðir ætlað að vera dónaleg
Erna Evudóttir, 30.4.2007 kl. 09:20
Hm.... auðvitað ekki /
Jónína Dúadóttir, 30.4.2007 kl. 12:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.