Lesa
23.5.2007 | 20:09
Ég kann að lesa, ég hef bara því miður ekki nógan tíma til þess! Ég er samt búin að finna mér nýjan höfund sem heitir Stephen Booth, breskur að uppruna að sjálfsögðu eins og allir þeir bestu í morðgeiranum! Bækurnar hans fjalla að sjálfsögðu um morð og blóð og svoleiðis skemmtilegheit sem mér finnst gaman að lesa um
Ég las 4 bækur eftir hann í fyrrasumar og er búin að kaupa mér 2 núna sem ég því miður er ekki byrjuð á en er aftur á móti komin vel á veg með bókina sem Jóka gaf mér fyrir margt löngu síðan
. En eins og sagt hefur verið á Íslandi þá verður bókvitið ekki í askana látið
svo ég fer að sofa núna og að vinna í fyrramálið og munið að fara ekki yfir ána eftir vatni!
Athugasemdir
Þú ert langflottust
Jónína Dúadóttir, 23.5.2007 kl. 20:12
Takk maður verður alltaf að reyna að halda framhliðinni í góðu lagi
Erna Evudóttir, 23.5.2007 kl. 20:16
Hí hí veit það
Jónína Dúadóttir, 23.5.2007 kl. 22:14
Er hann nokkuð skyldur John Wilkes Booth? Hvernig finnst þér bókin?
Jóhanna Pálmadóttir, 24.5.2007 kl. 11:44
Held hann sé bróðir hans eingetinn og bókin er frábær með myndum og öllu
Erna Evudóttir, 24.5.2007 kl. 14:24
Úúú eru lika myndir af blóðinu og morðunum og öllu ? Næs og djúsí og Erna miklu ánægðari með bókina
Jónína Dúadóttir, 24.5.2007 kl. 15:23
Jú best að fá þetta bara beint í æð, dry er alltaf best
Erna Evudóttir, 24.5.2007 kl. 15:45
Djúpt hugsandi dömur
Jónína Dúadóttir, 25.5.2007 kl. 12:19
Deeeeeeeeeeep
Erna Evudóttir, 25.5.2007 kl. 18:23
Búin að finna Birnu, hún poppaði upp á efri hæðinni hjá mér, með slatta af afkomendum með sér. Frábært Brandari ársins : hún kom norður í óþökk IE Maðurinn HLÝTUR að vera eitthvað brenglaður
Jónína Dúadóttir, 26.5.2007 kl. 08:08
Hahahahahahahahaahahhahahahahahahaha!!!!n
Jóhanna Pálmadóttir, 26.5.2007 kl. 13:38
Gott að hún er komin í leitirnar, hefði annars endað með að við hefðum þurft að fara í göngur til að finna hana og það á hestum! En er henni boðið í fermingarveisluna?
Erna Evudóttir, 26.5.2007 kl. 13:53
Sko Ándrea bauð henni og auðvitað fer hún
Jónína Dúadóttir, 26.5.2007 kl. 14:30
Kannski ekki á hesti samt
Jónína Dúadóttir, 26.5.2007 kl. 14:31
Mikið er ég fegin að hún gat farið annars hefðu þið mamma þurft að slá upp partýi fyrir hana greyið
Erna Evudóttir, 26.5.2007 kl. 16:58
Getum við ekki farið í göngur samt?
Jóhanna Pálmadóttir, 28.5.2007 kl. 11:18
Týndur fannst en fundinn hvarf,
að týndum fundinn leita þarf,
þá týnist sá en fundinn fer
að finna þann sem týndur er.
Jóhanna Pálmadóttir, 28.5.2007 kl. 11:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.