Að skipta sér í tvennt það er málið!
19.9.2007 | 12:46
Ég þyrfti að vera svona superhero sem gæti verið á 2 stöðum samtímis, stundum 3 þegar liggur á! Í kvöld t d þá er Axel með fótboltaleik og Eva í tónlistarskólanum og þetta er á sama tíma, og nei hún er ekki að læra á fiðlu heldur þverflautu og það fyndna er að ég fæ ekki hljóð í helv.... flautuna, kann sko að spila á svona venjulega blokkflautu en það skiptir engu þar sem mér er þetta alveg ómögulegt, Evu finnst það svo fyndið
Eva getur ekki farið ein í tónlistarskólann svo Axel minn sem er að verða 15 ára í febrúar verður bara alveg einn að spila fótbolta eða sko liðið hans verður þarna líka og slatti af öðrum foreldrum en samt, maður fær nú samviskubit
Nú svo annað kvöld er skólaráðsfundur og þar þarf ýmislegt að ræða eins og t d hvort skólinn skiftir sér af ef börn eru að fasta, það er sko Ramadan núna og múhameðstrúarmenn fasta yfir daginn eða sko fullorðnir og frískir, börn eiga ekki að fasta en ég veit um stelpu í bekknum hans Ívars sem gerir það, hún er 11 ára gömul, ekki alveg fullorðin! Það verða sjálfsagt skemmtilegar umræður ef ekki annað! Jæja best að ná í börn og baka svo pönnukökur til að hafa í kvöldmatinn, namm
Athugasemdir
Þú ert súpermamma.Af hverju fær Eva ekki að læra á fiðlu,hvað er í gangi
Birna Dúadóttir, 19.9.2007 kl. 12:51
Ekki leyfa henni að læra á fiðlu, ég endurtek : ekki leyfa henni að læra á fiðlu ! Skammastín Birna Þú stendur þið með afbrigðum vel Erna mín, ég veit að ég gæti þetta ekki
Jónína Dúadóttir, 19.9.2007 kl. 12:54
Uss ég var allt of löt við þetta,en Axel ætti nú að redda sér mömmu-laust úr þessu,amk stundumAf hverju má Eva ekki læra á fiðlu???Ég hef miklar áhyggjur af því að það sé verið að hefta barnið
Birna Dúadóttir, 19.9.2007 kl. 17:47
Sko þið hafið báðar verið í þessum bransa, eruð bara í afneitun eins og tengdadóttir Björns sáluga sem aldrei var þreytt, gat lagt sig á daginn og átti börn sem sváfu allar nætur, það er verið að hefta barnið, hana langar í alvöru til að læra á fiðlu en hér er það ekki hægt fyrr en í 3ja bekk, mér finnst það rosalega leiðinlegt
Erna Evudóttir, 19.9.2007 kl. 18:14
Ég maaaaan alveg þetta með fiðluna í Eyrarlandsveginum..... Við ætluðum öll að flytja að heiman, pabbi líka, ef Erna hætti ekki að misþyrma fiðlunni svona hræðilega þarna uppi á loftinu
Jónína Dúadóttir, 19.9.2007 kl. 18:42
Þetta var ekki fiðla þarna á loftinu,þetta var köttur
Birna Dúadóttir, 19.9.2007 kl. 18:44
VAR þetta kötturinn, Erna þó, ekki datt mér í hug að þú værir svona.... Áttum við annars nokkurn kött þá?
Jónína Dúadóttir, 19.9.2007 kl. 18:48
Eruð bara svona öfundsjúkar, ykkur langaði svo rosalega að fá að læra á fiðlu líka
Erna Evudóttir, 20.9.2007 kl. 05:42
Já, maður þyrfti sko að geta klónað sig stundum, kannast við það. Í mínum draumi klóna ég mig alltaf þannig að ein ég getur setið og gert ekkert ef hún/ég vill
Sigríður Hafsteinsdóttir, 21.9.2007 kl. 11:14
Góðan dag heillin, eða á ég að hafa það í fleirtölu, klónunin komin af stað ?
Jónína Dúadóttir, 24.9.2007 kl. 07:00
Farnar og komnar aftur
Erna Evudóttir, 24.9.2007 kl. 07:24
Nú þá er þetta nú líklega ekkert mál fyrir þig...ykkur... hm...
Jónína Dúadóttir, 24.9.2007 kl. 07:33
Góð spurning
Jónína Dúadóttir, 24.9.2007 kl. 09:47
Auðvitað kann ég á fiðlu, hvað annað?
Erna Evudóttir, 24.9.2007 kl. 10:44
Á ekki að bjóða manni á tónleika ?
Jónína Dúadóttir, 24.9.2007 kl. 12:37
Jú þeir verða örugglega í Carnegie Hall, ekki alveg búið að ákveða dagsetninguna enn
Erna Evudóttir, 24.9.2007 kl. 17:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.