Allt að lagast!
26.11.2007 | 06:25
Hér eru sjúklingarnir að skríða saman, kominn tími til
Það snjóar meira að segja smávegis svona í morgunsárið en það verður sjálfsagt ekkert úr þessu, krakkarnir ekkert hressir með það, vilja snjó sem vit er í en það skeður nú sjaldan hér því miður
Var á einhverju jólajippó niðrí bæ í gær með krakkana og það var svosem ok nema að eini jakkinn sem ég fann og get mögulega hugsað mér að ganga í er náttúrulega úr leðri og verðið eftir því, alveg svíndýr á sænsku
Nóg um það, njótið lífsins í dag, ekki mikið annað hægt að gera við mánudaga
Athugasemdir
Ég get ekki einu sinni boðið ykkur hingað í snjó, bara smá föl og í dag er 5 stiga hiti þannig að hann hörfar frekar en hitt. Fínt fyrir mig, verra fyrir börnin og skíðafólkið Gott að sjúklingunum er farið að líða vel
Jónína Dúadóttir, 26.11.2007 kl. 07:48
Verslaðu bara jakkann kona,þú átt hann skilið.Þú verður alltaf í gróða,hann væri miklu dýrari hérna heimaGott að sjúklingarnir eru í bata.
Birna Dúadóttir, 26.11.2007 kl. 12:32
Ef þú ert með einhvern móral taktu þá bara verðið á jakkanum og deildu í það með öllum hinum árunum sem þú hefur ekki keypt neinn jakka og útkoman er = þú ert löngu búin að safna fyrir jakkanum
Jónína Dúadóttir, 26.11.2007 kl. 13:09
Ok takk stelpur vissi að þið mynduð geta ráðlagt mér í þessu dæmi
Erna Evudóttir, 26.11.2007 kl. 15:14
Ef þú getur ekki treyst á systur þínar, á hvern þá ?
Jónína Dúadóttir, 26.11.2007 kl. 21:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.