Þorláksmessa!
23.12.2007 | 09:50
Þetta er dagurinn sem ég borða ekki skötu á en við erum með aðra siðvenju ég og Jóka við hittumst einhversstaðar og kveikjum á kerti fyrir pabba sem dó á þessum degi fyrir 7 árum síðan! Í dag kl. 14.00 á staðartíma tek ég yfir tölvuna og hlusta á jólakveðjurnar, allar jólakveðjurnar
við mikla hrifningu afkomenda minna
Aðrar fréttir eru að pappinn í fjölskyldunni hérna niðri er í Saudi Arabíu í svona pílagrímsferð, það er víst einhver hátíð hjá þeim þar sem heitir Hadj, þetta var náttúrulega það sem þið þurftuð að vita
Jæja en svona í lokin vil ég bara segja Gleðileg jól og farsælt komandi ár og takk fyrir allt gamalt og gott
Athugasemdir
Heyrðu svona pilagrimsferð er alveg brilliant,eigum við ekki að skella okkur næst
Birna Dúadóttir, 23.12.2007 kl. 10:22
Jú var einmitt að pæla í þessu, verð að spurja hann hvað flugfélag fljúgi þangað!
Erna Evudóttir, 23.12.2007 kl. 11:36
Vá get ekki beðið,eigum við ekki bara að skella okkur núna
Birna Dúadóttir, 23.12.2007 kl. 14:01
Jú er gott að það er einhver þarna sem maður þekkir!
Erna Evudóttir, 23.12.2007 kl. 14:55
Þið eruð uppáhaldsbullukollarnir mínir
Jónína Dúadóttir, 23.12.2007 kl. 17:04
Ég skal koma með, örugglega gott veður þarna niðurfrá og svo kann ég líka að segja Guð er stór á arabísku og verð bara að fá að koma því til skila á réttum stað...
Jóhanna Pálmadóttir, 23.12.2007 kl. 19:57
Kenndu okkur Ernu,svo að við klikkum ekki
Birna Dúadóttir, 24.12.2007 kl. 00:25
Gleðileg Jól
Birna Dúadóttir, 24.12.2007 kl. 09:31
Gleðilega hátíð elsku Erna mín og fjölskyldaÉg setti inn nokkrar myndir í Jóla-albúmið mitt
Jónína Dúadóttir, 25.12.2007 kl. 11:35
Ertu enn að borða jólamatinn
Birna Dúadóttir, 29.12.2007 kl. 10:23
Heyrðu feitabollan þín, farðu nú að hætta þessu áti
Jónína Dúadóttir, 30.12.2007 kl. 09:33
Jónína Dúadóttir, 30.12.2007 kl. 16:15
I´m back!
Erna Evudóttir, 31.12.2007 kl. 12:09
(Nokkrar færslur og mér líkar þínar skoðanir)
Gunnar Helgi Eysteinsson, 31.12.2007 kl. 12:44
Búin að éta á sig gat,hún Erna
Birna Dúadóttir, 31.12.2007 kl. 17:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.