Að góðum sveitasið!
4.8.2008 | 10:30
Já var sko á Akureyri um helgina og það var snilld, gistum hjá Ninnu og Jóa og þau höfðingjar heim að sækja
Það var þvílíka tertupartíið á laugardaginn þar sem við vorum mætt 4 af börnum tengdadóttur Björns, móðir þessara barna, systir hennar og maður nú svo 2 af tengdasonum hennar og slatti af barnabörnum og barnabarnabörnum, bara alvöru veisla
Hnallþórur sem systur mínar fyrirmyndarhúsmæðurnar göldruðu fram á ca kortéri, lýg því ekki
Nú svo í gær sunnudag var annað eins partý hjá móðursystir okkar, svo maður kemur nú vænn undan helginni ekki hægt að segja annað
Svo að góðum sveitasið notuðum við ferðina og fylltum bílinn af ýmsu nauðsynlegu sem ekki er hægt að versla hér í fámenninu
En það var mikið gott að koma heim í Heiðmörk, takk enn og aftur Ninna og Jói fyrir allt, Birna takk líka fyrir allt, snilldarsamkoma sem við fórum á að venju
Ps:Púkinn samþykkir ekki Ninnu
Athugasemdir
Takk fyrir síðast,þetta var skemmtilegt.Verð þó að segja að hnallþórurnar voru alfarið Ninnu og Jóa.Þau eru snillar
Birna Dúadóttir, 4.8.2008 kl. 10:44
Takk fyrir að vilja vera hjá okkur, hlakka til næstHnallþórur hvað ? Jói hlýtur að hafa gert þetta
Jónína Dúadóttir, 4.8.2008 kl. 12:56
Ætli hann Jói sé snillinn
Birna Dúadóttir, 4.8.2008 kl. 15:34
Jói er snillinn, ekki spurning
Erna Evudóttir, 5.8.2008 kl. 00:19
"Snillinn" er að byrja að vinna í dag, verð að segja að ég er svo sem ekkert ofsalega leið yfir þvíÞá get ég loksins farið að hvíla mig eins og ég á að gera
Jónína Dúadóttir, 5.8.2008 kl. 05:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.