Blessuð blíðan!
20.8.2008 | 09:44
Það er svona lognið og blíðan hérna, hleður batteríin að horfa yfir fjörðinn
Við fórum í gær í heimsókn í skólann og krökkunum leist bara vel á þetta, mér líka reyndar
Það sem krökkunum fannst mest til koma er stærðin á húsinu, bara 100 krakkar í öllu þessu húsi sem er örugglega 2 sinnum stærra en skólinn þeirra í Svíþjóð þar sem voru amk 200 krakkar
Eva og Ísak eru farin að æfa frjálsar og finnst það rosa gaman, skil ekki alveg þessa íþróttaáráttu hjá börnunum mínum, hafa ekki fengið það frá mér
Er að skoða það af fá mér hænur eða endur, langar doldið að hafa fugla og ýmislegt annað eins og grís eða geitur, veit ekki alveg hvað má svona inní miðjum bæ, kemur allt í ljós með það
Njótið dagsins
Athugasemdir
Sko þau hafa greinilega fengið alla þína íþróttaáráttu, þú átt enga eftir... Þú mátt alveg hafa páfagauk í búri inni hjá þér, veit ekki með geitur... ætli þær vilji nokkuð vera í búri ?
Jónína Dúadóttir, 20.8.2008 kl. 10:00
Þekkti geit í Svíþjóð sem hét Tryggve, hann hefði sko ekki viljað vera í búri, er nokkuð viss um það
Erna Evudóttir, 20.8.2008 kl. 10:52
Og þá ekki fuglabúriFrábært nafn á geit, ég átti einu sinni hest sem hét Tryggur... ég valdi samt ekki nafnið
Jónína Dúadóttir, 20.8.2008 kl. 11:41
Ísak fór á hestbak í fyrrasumar og sá hestur hét Júlíus
Erna Evudóttir, 20.8.2008 kl. 11:58
Jónína Dúadóttir, 20.8.2008 kl. 12:40
Viðurkenndu það bara,þú ert íþróttaálfur.Hmm ég þekkti einu sinni mann,sem var eiginlega bara strákur þá,ægilega mikið krútt og...Anda...jæja sko hann átti hund sem hét Jakob Tryggvason
Birna Dúadóttir, 20.8.2008 kl. 13:44
Af hverju hét hundurinn Jakob Tryggvason ?
Jónína Dúadóttir, 20.8.2008 kl. 14:04
Ég eiginlega veit það ekki,þegar ég hugsa um það þá var eigandinn kannski helst til skrítinn,en voða sætur samt,minnir mig
Birna Dúadóttir, 20.8.2008 kl. 14:20
Jónína Dúadóttir, 20.8.2008 kl. 17:43
Líktist hundurinn Jakobi Tryggvasyni eða?
Erna Evudóttir, 20.8.2008 kl. 21:44
Fer kannski eftir tegundinni hvort það var þá fallegur hundur....
Jónína Dúadóttir, 21.8.2008 kl. 07:02
Æjá hundspottið var sæmilegurÞetta er allt að rifjast upp,eigum við ekki bara að tala um eitthvað annað
Birna Dúadóttir, 21.8.2008 kl. 07:08
Nei, segðu okkur endilega meira...
Jónína Dúadóttir, 21.8.2008 kl. 07:20
Vera opin og einlæg
Erna Evudóttir, 21.8.2008 kl. 08:01
Það er svoooo mælt með því....
Jónína Dúadóttir, 21.8.2008 kl. 08:05
Uss ég myndi ekki einu sinn segja frá þessu við eldhúsborðið hennar mömmuSkil ekkert í mér að vera að rífa þennan ófögnuð sisvona upp með rótum
Birna Dúadóttir, 21.8.2008 kl. 12:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.