Krummi!
18.12.2008 | 12:31
Mér finnst krumminn kúl, það situr stundum einn á ljósastaurnum hérna fyrir utan húsið (jú við erum með ljósastaura hérna í fámenninu) og mér finnst það næs
Mig langar ekkert til að skjóta allt sem hreyfist eins og sumir (og ef það hreyfist ekki þá hrista þeir það) vantar alveg þau gen í mig
Sé stundum seli í fjöru þar sem ég keyri framhjá á leiðinni í vinnuna, mér finnst það líka næs, langar ekkert að drepa þá
Einar og Johanna kærastan hans eru á leiðinni til landsins as we speak eða í þessum töluðu/pikkuðu orðum og er það besta jólagjöfin ever, gæti ekki verið betra
Ég sendi Jóku algjöran kreppupakka, bara aumingjalegt en reyni að bæta úr því síðar
Verð að hætta núna flaug nefnilega á hausinn hérna fyrir utan húsið hjá mér í fyrradag og er að drepast í handleggnum, einu sinni gat ég gert svona osfrv og held að ælupestin hafi náð mér líka, ekki verið nógu fljót að hlaupa síðustu árin
Athugasemdir
Æts,þú verður að fara að æfa spretthlaup konaGeturðu ekki einu sinni gert svona...Þá er þetta slæmt
Birna Dúadóttir, 18.12.2008 kl. 12:37
Æ æ æ og ekki svona heldur ?Hvurslags móttökur ætla þetta eiginlega að verða þegar jólagjöfin sjálf er að koma í húsHættu nú þessu flensuveseni sem fyrst greyið mitt
Jónína Dúadóttir, 18.12.2008 kl. 13:15
Jamm mér er sagt að þetta borgi sig engan veginn
Birna Dúadóttir, 18.12.2008 kl. 13:23
Hlustaðu á Birnu... í þetta skipti
Jónína Dúadóttir, 18.12.2008 kl. 13:27
Ókey í þetta skiptið
Erna Evudóttir, 18.12.2008 kl. 14:06
Jónína Dúadóttir, 18.12.2008 kl. 18:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.