Jákvæð :)
22.4.2009 | 08:22
Ég er nú svo uppfull að jákvæðni þessa dagana að ég skil þetta næstum því bara ekki, jú skil það alveg
snýst um að hugsa öðruvísi og ekki skemmir að umgangast jákvætt og skemmtilegt fólk
Ég ætla að halda því áfram eins lengi og fólk nennir að umgangast mig
Nú í byrjun maí nánar tiltekið 3.maí ætla ég að halda uppá afmælið hennar Nínu Láru, krúttlegu frænku minnar/barnabarns með því að mæta í fermingu hjá fleira yndislegu frændfólki á Selfossi, getur bara varla orðið betra
Takk fyrir að vera til fyrir mig
Athugasemdir
Að vera jákvæður er góð skemmtun Hlakka til að halda upp á afmælið hennar Nínu Láru með þér og að hitta allt þetta skemmtilega fólk í fermingunni. Svo ég tali nú ekki um áætlaða sumarbústaðaferð Takk sömuleiðis að vera til fyrir mig og mína
Birna Dúadóttir, 22.4.2009 kl. 08:33
Til hamingju með afmælið
Jónína Dúadóttir, 25.4.2009 kl. 08:47
Til hamingju með daginn skvís
Birna Dúadóttir, 25.4.2009 kl. 09:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.