Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2008
Jamm!
28.8.2008 | 12:00
Hef verið að sjá að sumir óskapast yfir einhverri auglýsingu í Lögbirtingarblaðinu á pólsku
Ég hef séð auglýsingar á pólsku í öðrum blöðum en ekki séð neinn bregðast við yfir því
Einhver skrifaði að þetta fólk yrði að læra íslensku, jú mikil ósköp en mikið hefði ég nú orðið ánægð yfir á mínu fyrstu árum í Svíþjóð ef einhversstaðar hefði nú staðið eitthvað á íslensku, bara svo þetta hefði orðið aðeins auðveldara
Ég held nú ekki að ég hefði verið lengur að læra sænskuna, því það snýst nú líka soldið um áhuga og að hversu miklu leyti maður vill vera þáttakandi í því samfélagi sem maður hefur búsett sig í! Ég hitti alveg konur í Svíþjóð (eiginlega bara konur) sem bjuggu í Íslendinganýlendum og kunnu rétt nóg til að bjarga sér í búðinni og höfðu ekki áhuga á neinu öðru
Skildi það nú ekki alveg og skil ekki enn en svona er þetta misjafnt með fólk! Núna fer að styttast í Ljósanótt sem er gott, alltaf gott að koma í Keflavík, sko ef maður kemst þaðan aftur
Have a nice day
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Blessuð blíðan!
20.8.2008 | 09:44
Það er svona lognið og blíðan hérna, hleður batteríin að horfa yfir fjörðinn
Við fórum í gær í heimsókn í skólann og krökkunum leist bara vel á þetta, mér líka reyndar
Það sem krökkunum fannst mest til koma er stærðin á húsinu, bara 100 krakkar í öllu þessu húsi sem er örugglega 2 sinnum stærra en skólinn þeirra í Svíþjóð þar sem voru amk 200 krakkar
Eva og Ísak eru farin að æfa frjálsar og finnst það rosa gaman, skil ekki alveg þessa íþróttaáráttu hjá börnunum mínum, hafa ekki fengið það frá mér
Er að skoða það af fá mér hænur eða endur, langar doldið að hafa fugla og ýmislegt annað eins og grís eða geitur, veit ekki alveg hvað má svona inní miðjum bæ, kemur allt í ljós með það
Njótið dagsins
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Nóg að gera hér!
18.8.2008 | 10:40
Helgin sem leið var bara skemmtileg, fjallganga, sund og heimsóknir, bara snilld
Var að hugsa þarna upp á fjalli að það er varla hægt að komast lengra frá Ryd en þetta, ekki misskilja það, mér fannst gott að búa þar og sakna fólksins og fjölbreytileikans í hverfinu, bara við að fara út í búð þarna hitti ég kannski fólk frá 10 ólíkum löndum
En annars er hér næst á dagskrá að krakkarnir byrja í skólanum á föstudaginn, gaman að sjá hvernig það verður og einnig áhugavert að sjá hvað þarf mikið að kaupa fyrir þau, þeim finnst það skrítið, í Svíþjóð þurfa þau bara að mæta með skólatösku, fá allt annað í skólanum
Vonandi eigið þið ánægjulegan dag, það ætla ég að gera
Over and out
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Komin á giftingaraldurinn!
10.8.2008 | 11:22
Er nefnilega 20 ára í dag, sem er bara frábært, hefði ekki trúað því þarna um árið í kjallara vestur á landi að ég yrði ein af þeim sem tækist þetta
En þetta virkar einn dag í einu
Veðrið er frábært hérna í fámenninu og húsið líkist heimili meira og meira fyrir hvern dag
Talaði við Einar minn í gær og hann er bara hress, finnst gaman að vera kominn aftur til Kvarn
Lífið er fullt af jákvæðum hlutum, maður þarf bara stundum að vera með augum opin fyrir því
Ég ætla að eiga góðan sunnudag, óska ykkur þess sama
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Sest niður!
8.8.2008 | 09:36
Talvan/tölvan komin ofan af skáp á tölvuborð, húrra
Átti alveg frábæran dag í gær á sveitabæ í Fljótsdalnum, bara frábært, yndislegt fólk og náttúrulega troðið í mann veitingum
Hef verið með heimþrá til Svíþjóðar sem er ekkert skrítið, á þar góða vini sem ég sakna mikið!
Hef frétt af miklu af berjum hér um allar sveitir, gæ að því í dag eða um helgina, fer eftir veðri
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Að góðum sveitasið!
4.8.2008 | 10:30
Já var sko á Akureyri um helgina og það var snilld, gistum hjá Ninnu og Jóa og þau höfðingjar heim að sækja
Það var þvílíka tertupartíið á laugardaginn þar sem við vorum mætt 4 af börnum tengdadóttur Björns, móðir þessara barna, systir hennar og maður nú svo 2 af tengdasonum hennar og slatti af barnabörnum og barnabarnabörnum, bara alvöru veisla
Hnallþórur sem systur mínar fyrirmyndarhúsmæðurnar göldruðu fram á ca kortéri, lýg því ekki
Nú svo í gær sunnudag var annað eins partý hjá móðursystir okkar, svo maður kemur nú vænn undan helginni ekki hægt að segja annað
Svo að góðum sveitasið notuðum við ferðina og fylltum bílinn af ýmsu nauðsynlegu sem ekki er hægt að versla hér í fámenninu
En það var mikið gott að koma heim í Heiðmörk, takk enn og aftur Ninna og Jói fyrir allt, Birna takk líka fyrir allt, snilldarsamkoma sem við fórum á að venju
Ps:Púkinn samþykkir ekki Ninnu
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)