Jamm :)
3.2.2010 | 18:46
Datt í hug í morgun af einhverjum óútskýranlegum ástæðum þegar maður fór í dansskóla í gamla daga með spariskóna í poka, mér finnst eins og það hafi alltaf verið kallt úti og dimmt og maður fór í einhvern sal uppi í Landsbankanum og ég man ekki eftir að þetta hafi verið neitt gaman, man ekki heldur afhverju þetta var ekki gaman en ....
Var á svona kynningarfundi fyrir atvinnulausa í morgun, hmmmm, sko þá byrjar lesturinn : ég kann að lesa og ég get lesið þetta alltsaman inná heimasíðunni hjá Vinnumálastofnun, vildu þeir vera vissir um að ég færi á fætur amk í dag, geri það nottla enga aðra daga
Æi þetta er sjálfsagt vel meint hjá þeim, ég bara neikvæð
En svona til að nefna veðrið að íslenskum sið þá fór allt í einu að snjóa og það snjóar enn, púff, ekkert nauðsynlegt en ekkert við því að gera
Spakmæli dagsins : Feelings are facts
sem er bæði gott og slæmt, ja amk fyrir mig
Athugasemdir
Þetta var nú gaman, eða hvað Ég man líka þetta með spariskóna í poka. Var maður svo ekki látinn dansa við næstum því hvern sem var, ekki spennandi Það snjóar ekkert hjá mér
Birna Dúadóttir, 3.2.2010 kl. 18:53
I take your word for it jú man það, það var virkilega hvað sem var þarna
Erna Evudóttir, 3.2.2010 kl. 19:25
Birna Dúadóttir, 3.2.2010 kl. 20:01
Mér fannst aldrei gaman í dansskólanum...Þurfið þið að mæta á atvinnuleysisskrifstofuna ? Hér mætir held ég enginn, skráir sig bara á netinu og fólk getur þess vegna verið í útlöndum á íslenskum bótum En það þarf aðvitað að sjá til þess að þú farir á fætur... þó ekki sé nema einu sinni í viku
Jónína Dúadóttir, 3.2.2010 kl. 20:30
Nei þarf ekkert að mæta nema bara í dag, geri þetta bara á netinu annars en ég fór amk á fætur í dag
Erna Evudóttir, 3.2.2010 kl. 21:36
Jæja, þó það
Jónína Dúadóttir, 3.2.2010 kl. 21:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.