Boring !!!!!
24.4.2010 | 21:00
Mér leiddist um daginn
skeður nú sjaldan og er það mikið gott, gæti endað með ósköpum ef það kæmi oft fyrir mig
Var í kaffidrykkjusamsæti í leynifélaginu í dag og þar var ma verið að ræða hvað við eigum það til að flækja hluti fyrir okkur
á meðan "hinir" virðast hafa svo stutta hugsun, fara bara frá A til B án þess að fara með hugsunina í marga hringi í kringum hausinn á sér og kafna svo næstum i öllu saman
Nú eða þessi árátta að kalla hlutina ekki sínum réttu nöfnum
að vera í tilfinningarugli er kannski bara annað nafn fyrir greddu
eins og einn góður maður sagði einusinni
En ég er flott og speki dagsins er : Allir eru ógiftir í verinu
Athugasemdir
Amm þetta er bara gredda Orðið tilfinningarugl er fundið upp af alka (að sjálfsögðu karlmanni ) sem réttlæting Oh ég vildi að ég væri ógift í verinu
Birna Dúadóttir, 24.4.2010 kl. 23:05
Já held það væri soldið kúl að vera ógiftur í verinu, þá væri sko hægt að tala um gre... nei tilfinngarugl
Erna Evudóttir, 24.4.2010 kl. 23:22
Til hamingju með afmælið
Birna Dúadóttir, 25.4.2010 kl. 00:21
Til hamingju með afmælið elskan mínOg svona þér til upplýsingar þá er ég ógift í verinu... og verunni og... í raun og veru... og barasta alls ekki í neinu tilfinningarugli
Jónína Dúadóttir, 25.4.2010 kl. 09:33
Takk elskurnar Ninna það þökk þér að það er ennþá von fyrir mannkynið já eða kvenkynið
Erna Evudóttir, 25.4.2010 kl. 21:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.