Mig vantar Yugo :))
2.6.2010 | 16:38
Er alveg að sjá að ég er svo ekki týpan sem á að eiga hús finnst svo ekkert aðlaðandi við að þurfa að gera allt sjálf
Var svo að fíla að hafa þetta svona eins og þar sem ég bjó áður, ef eitthvað bilaði þá hringdi ég í Crendo sem sendi mér Yugo sem lagaði allt
Bara snilld og svo fékk maður smá svona slúður um nágranna í kaupbæti
Eins og í dag í svona góðu veðri þá langar mig ekkert til að slá lóðina
nei ég vil heldur fara niðrí fjöru eða uppí fjall og horfa á fugla eða fallegt landslag
Langar í andarunga, eða bara unguð egg og láta hænurnar liggja á , gæti verið gaman að því
þær voru nú skemmtilegar endurnar heima í Eyrarlandsvegi
held stundum að ég hebbði átt að flytja í sveit, myndi sjálfsagt eiga við mig að eyða dögunum í svona bláum galla og stígvélum að moka flór og svona skemmtilegheit
Svo er kominn Júní og fullt að ske í sumar, hátíðir hingað og þangað og ýmislegt kúl í gangi
Farin út í góða veðrið en ekki til að slá lóðina
Athugasemdir
Kondu bara memmér á Bíldudalsgrænar, má vera með hænur og endur þar
Birna Dúadóttir, 2.6.2010 kl. 19:48
Já og vera í stillvellum líka... alltaf
Jónína Dúadóttir, 2.6.2010 kl. 20:07
Já við skulum bara skella okkur í stíllvell og bruna á Bíldudal
Erna Evudóttir, 2.6.2010 kl. 20:36
Drífa sig, ég er hálfnuð upp á gatnamót
Birna Dúadóttir, 2.6.2010 kl. 22:31
Þarf bara að finna gallann
Erna Evudóttir, 2.6.2010 kl. 22:52
Erna mín, gallinn hengur í forstofunni er það ekki ?
Eða varstu að meina eina gaddlann við þessa áætlun eða.... ?
Jónína Dúadóttir, 3.6.2010 kl. 21:10
Engin galli við þetta plan, nema að ég er enn að bíða úppá gattttnamótum
Birna Dúadóttir, 4.6.2010 kl. 09:37
Hehehe nei hann hangdi sko ekkert í forstofunni
gevöð ætli ég hafi gleymt honum á náttborðinu einhversstaðar
en sko Birna það er nú stór galli í þínu fari ef enginn hefur boðið þér far ennþá
þarft að skoða það eitthvað
Erna Evudóttir, 4.6.2010 kl. 10:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.