Eyyyyyyyyyyyymingi :)
26.6.2010 | 21:16
Já er svona eyyyyyyyymingi
er svo að drepast í mjöðminni og hægri löppinni að ég get varla gengið nema með óhljóðum
Hef annars átt ágætis viku í vinnunni, ágætis fólk sem vinnur þarna og nóg að gera en ég sit alla daga fyrir framan tölvu og það hef ég ekki gert mjöööög lengi
Síðast þegar þetta kom fyrir mig var ég einmitt búin að sitja lengi við tölvuna en þá að skrifa ritgerð en þetta lagast sjálfsagt fljótlega, já amk ætla ég í vinnuna á mánudaginn
Voða gott að þetta gekk alltsaman vel með frænku litlu í Noregi, gott að Birna gat farið þarna út til hennar
Ekkert gaman að lenda á spítala í útlöndum og hafa ekki mömmu hjá sér
En er allavega búin að liggja uppí rúmi í mestallan dag og ég sem ætlaði að gera svo mikið um helgina, oh well kemur víst dagur eftir þennan dag
Góðar stundir gott fólk
Athugasemdir
Trixið er að skilja löppina og mjöðmina eftir heima
Birna Dúadóttir, 27.6.2010 kl. 08:26
Heyrðu þetta var nú alveg merkilegt, ég staulaðist út úr bílnum, inn og upp tröppurnar, náði mér í kaffi og settist við tölvuna, sat í klukkutíma og svo þegar ég stóð upp næst var EKKERT að mér Bilað en satt, kom svo heim og finn strax fyrir þessu aftur
Erna Evudóttir, 28.6.2010 kl. 17:26
Aha... þetta eru hreyfingaverkir... hættu að labba
Jónína Dúadóttir, 6.7.2010 kl. 11:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.