Góðir!
25.2.2007 | 08:45
Er alveg að skilja þetta, börnin mín eru sko 1/16 Færeyingar (held þetta sé rétt hjá mér)! Þessvegna eru þau svona löghlýðin og ræna ekki gamlar konur eða stela mikið í búðum (sagði þeim á sínum tíma að maður stelur ekki heima hjá sér bara í búðum en þau sjálfsagt búin að gleyma því) Hér er snjór aftur, gaman að því! Þessi blessuð vika búin og skólinn byrjar aftur á morgun, ég er voða hress með það, verð bara þreytt á allri þessari íþróttaiðkun! Vona að þessi vika verði góð fyrir alla viðstadda, Birna og Axel eiga náttúrulega afmæli í vikunni svo þetta hlýtur að verða besta vikan ever

![]() |
Færeyingar haga sér manna best |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Og loksins geturðu farið að slappa af........
Jónína Dúadóttir, 25.2.2007 kl. 09:39
Besta vika ever framundan,ekki spurning.'Eg er alveg viss um að það hlýtur að vera færeyingur í mér,því til sönnunar nefni ég hjól,fjólur og begoníur,sei nó mor
.Enginn snjór hér,bara sól og sumar.
Birna Dúadóttir, 25.2.2007 kl. 13:24
...og barnaföt

Jónína Dúadóttir, 25.2.2007 kl. 13:31
Mér finnst þetta samt spurning um að skella inn nokkrum myndum af íþróttamótum miklum úr
Lysti garðinum
Birna Dúadóttir, 25.2.2007 kl. 17:09
Já þér finnst þetta með íþróttamótin góð hugmynd, frami okkar sem hjólreiðakappar var stuttur en viðburðarríkur
. Held að því miður séu ekki til neinar myndir af neinum hjólreiðakeppnum sem við vorum með í
Erna Evudóttir, 25.2.2007 kl. 17:28
Ég held það sé bara af því að myndunum var stolið og þar voru að verki æstir aðdáendur ykkar íþróttahetjanna
Jónína Dúadóttir, 25.2.2007 kl. 18:55
Já og þessir aðdáendur voru örugglega af Eyrinni
Erna Evudóttir, 25.2.2007 kl. 20:43
Hann Gvendur á Eyrinni var,,bíddu var einhver Gvendur á þeirri Eyrinni?
Birna Dúadóttir, 25.2.2007 kl. 21:28
Oh yessss, nokkuð viss um það þó maður væri nú kannski ekki með réttu ráði enda ekki í réttu hverfi, þurfti náttúrulega að fá sér hressingu áður en hægt var að vera eitthvað í þessu umhverfi
, er einhver að taka eftir einhverju snobbi hérna? Nei hélt ekki
Erna Evudóttir, 25.2.2007 kl. 21:36
Bíddu,snobb,hvar?Kannast ekki við að hafa nokkurn tíma orðið vör við svoleiðis
Birna Dúadóttir, 26.2.2007 kl. 19:22
Hroki, hvað er það ?
Jónína Dúadóttir, 26.2.2007 kl. 19:51
No comments!
Jóhanna Pálmadóttir, 26.2.2007 kl. 21:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.