Engar fréttir eru góðar fréttir, held ég!
30.3.2007 | 11:47
Hef ekkert lesið um Ninnu og Jóa í blöðunum svo þau eru sjálfsagt bara að skemmta sér vel í Borg óttans! Hér sé kvef í öllum myndum og sólin skín, krakkarnir komin í páskafrí og bara ánægð með það! Annars er ég ekkert spennt fyrir páskunum, skreyti ekki né föndra og skipti allsekki um gardínur, finnst ekkert að maður þurfi að borða eitthvað sérstakt páskafæði, sé bara til þess að það sé til nóg af nammi handa öllum! Hérna á árum áður var páskafríið notað til skemmtanahalds minnir mig en það er nú liðin tíð sem betur fer
. Njótið helgarinnar, það ætla ég að gera
Athugasemdir
Hvaða blöð lest þú eiginlega?Þetta er fj...dýr borgarferð, við þurftum að kaupa fartölvu svo ég gæti komist inn á bloggið og fylgst með ykkur ! Er núna í íbúðinni að laumast inni á Internettengingu einhvers hérna í húsinu, dettur út annaðslagið, en þjófar geta ekki verið með kröfur
Jónína Dúadóttir, 30.3.2007 kl. 14:12
Les sko bara Moggann og það er virðulegt blað svo það sem þið hafið verið að gera hefur sko bara verið svo slæmt að það hefur ekki tollað á prenti, haldið áfram að skemmta ykkur og ekki láta lögginn ná þér við þjófnaðinn, alveg nóg að Birna sé góðkunningi lögreglunnar
Erna Evudóttir, 30.3.2007 kl. 20:54
Þeir hafa sérblað fyrir fólk eins og Ninnu og Jóa,nei ég held að þau séu bara róleg.Maður gær að því á morgunGóðkunningi löggunnar hvað
Birna Dúadóttir, 31.3.2007 kl. 00:38
Erum að elda handa Birnu, gerum ekki mikið af okkur á meðan
Jónína Dúadóttir, 31.3.2007 kl. 16:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.