Íslenska!
24.4.2007 | 06:52
Var á foreldrafundi í gærkvöldi og hitti þar íslenska konu, hún er gift Svía og á strák í Axels bekk! Gaman að því, hitti næstum aldrei íslendinga hérna í bænum, það eru víst ekki margir íslendingar sem búa hérna! Nú þessi foreldrafundur gekk sæmilega, talað og talað eins og venjulega, er ekkert orðið rólegra í bekknum síðan síðast! Nú svo var farið fram á það við foreldrana að við komum í skólann í þá tíma þar sem eru mest læti, ég ætla að fara í sænskutíma á mánudögum! Jæja hætt núna og fer með Ísak á leikskólann, njótiði dagsins!
Athugasemdir
Virðist sniðug hugmynd Svo geturðu líka prófað að hóta því að Ninna systir komi og þvoi þeim um hárið
Jónína Dúadóttir, 24.4.2007 kl. 07:03
Ég veit ekki alveg hvort ég má hóta þeim með svona miklum misþyrmingum
Erna Evudóttir, 24.4.2007 kl. 07:55
Úpps
Jónína Dúadóttir, 24.4.2007 kl. 09:37
Góð hugmynd að skella sér í tíma,ég gerði það á sínum tíma þegar Adda bekkur var í messi,svínvirkaðiog mér leiddist ekkert sjálfri
Birna Dúadóttir, 24.4.2007 kl. 22:06
Svo er alltaf plan b,að senda Ninnu til að þvo þeim um hárið
Birna Dúadóttir, 24.4.2007 kl. 22:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.