Frí!
16.5.2007 | 14:45
Þá er ég komin í 5 daga frí, nú verður sko bara legið uppí sófa og slappað af! Nú Becca er komin og verður fram á sunnudag, held ég, hef ekkert spurt hvenær hún fer heim
Ísak er voða ánægður með að vera ekki á leikskólanum svona lengi, hann er ekkert leikskólabarn og hefur aldrei verið, vill bara vera heima! Nú svo verð ég bara að fá að monta mig af Axel, hann var með 19 rétt af 20 á stærðfræðiprófi núna um daginn, frábært
. Nú svo er Einar að fara að keppa í slagsmálum á laugardaginn í Stokkhólmi, held þetta heiti nú samt sport jiujitsu, er ekki alveg með þetta á hreinu, vona bara að það gangi vel þ e a s að hinir verði með fleiri glóðaraugu og marbletti en Einar
Nú svo er Ívar að fara til Gröna Lund í Stokkhólmi á föstudaginn með skóladagheimilinu, tívolí og allt, verður sjálfsagt voða fjör! En jæja verð að hætta svo ég hafi tíma til að slappa af! Góða skemmtun á uppstigningardaginn hvort sem þið farið í kirkju eða bara út að labba!
Athugasemdir
Bara allt gott að gerast hjá þér, til hamingju með þetta allt saman
Jónína Dúadóttir, 16.5.2007 kl. 15:48
Myndi nú ekki kalla það frí þegar ég er að senda skottu til þín...það er þá frekar ég sem er komin í frí
Jóhanna Pálmadóttir, 16.5.2007 kl. 15:55
Sko ef þú sendir þær báðar til mín þá væri nú aðeins minna frí, ekki það að yngri dóttir þín sé fyrirferðarmikil, bara yngri
Erna Evudóttir, 16.5.2007 kl. 16:27
Liggðu bara í sófanum og láttu börnin ganga sjálfala,það herðir þau baraSkyldi mamma þín vita af þessu
Birna Dúadóttir, 17.5.2007 kl. 01:01
Já hún fann þetta upp, maður var nú hvorki snýttur né skeindur hérna í eina tíð
Erna Evudóttir, 17.5.2007 kl. 06:27
Nú, hver var mamma hennar Ernu ?
Jónína Dúadóttir, 17.5.2007 kl. 07:07
Ég hef sko öruggar heimildir fyrir því að það var ekki skipt á Ninnu nema á miðvikudögum, veit ekki alveg hver mamma hennar er
Erna Evudóttir, 17.5.2007 kl. 09:59
Furða að maður skyldi komast til manns,eða í okkar tilfelli konu
Birna Dúadóttir, 17.5.2007 kl. 11:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.