Pössun
8.8.2007 | 18:52
Jæja þá er frumburðurinn kominn í pössun hjá Birnu með tilheyrandi kleinum og mjólk, er sko ekki í fyrsta skipti sem Birna passar hann fyrir mig, að vísu sjálfsagt 17 ár síðan síðast en sko ef hann fer í pössun þá er það til hennar! Held þau fari svo norður á morgun, stoppa vonandi í Staðarskála og ýla og góla eins og við í okkar fjölskyldu gerum þegar við erum á ferðinni, nú svo tekur Birna sjálfsagt "Þú komst í hlaðið á hvítum hesti" eða syngur Ljómaauglýsinguna. Hrein og tær snilld!
Over and out!
Athugasemdir
Af einhverjum ástæðum langar mig ekkert ofsalega mikið til að fá að vera með
Jónína Dúadóttir, 8.8.2007 kl. 21:40
Hvað þú ert nú alveg örugglega svona ýlari og gólari inn við beinið
Erna Evudóttir, 8.8.2007 kl. 22:52
Já kannski svona í laumi, ekkert endilega í Staðarskála
Jónína Dúadóttir, 9.8.2007 kl. 06:53
Ég er nú ekkert að standa mig.Þau fengu kleinurnar og mjólkina,en ég varð að senda þau í rútuna í morgun.Helv.. bílavesen hérna megin.Svo gleymdi ég að ýla og góla,en reddaði því.Ég hljóp bara á eftir rútunni í svona korter og annað eins ýl og gól hefur ekki heyrst síðan á loftinu heima í den.Foreldrar mínir hefðu orðið stoltir af stelpunni,amk mamma.Ég var orðin soldið móð þegar mennirnir í hvítu fötunum komu.Og núna er ég bara hérna innan um yndislegt fólk að drekka kaffi og borða gular og grænar pillur
Birna Dúadóttir, 9.8.2007 kl. 09:42
Og Ninna mín,þú hefðir bara átt að heyra okkur systurnar taka Ljómaauglýsinguna í eldhúsinu mínu,tær snilld.
Birna Dúadóttir, 9.8.2007 kl. 10:05
Æ æ æ æ alltaf er ég að missa af öllu, nema rútunni með þessum yndislegu krökkum sem ég passaði svo í dag meðan amman var í lagningu
Jónína Dúadóttir, 9.8.2007 kl. 22:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.