Ammæli eða þannig
10.8.2007 | 07:30
Í dag eru sko 19 ár síðan ég fór í sloppinn, finnst alls ekki svona langt síðan en er það besta sem ég hef gert svona fyrir utan að eignast börnin mín og að sitja á stakkeiti og horfa á Hallgrím slá með orfi og ljá
. En svona án gamans þá hefði ég ekki trúað því fyrir 19 árum síðan þegar ég sat þarna á sloppnum að ég væri enn edrú eftir 19 ár en þetta átti sjálfsagt bara að verða svona! En hér er allt rólegt, sól í gær, rigning í dag og það er bara hið besta mál, fer seinna í dag og fæ mér tertusneið og kaffi í tilefni dagsins! Have fun
Athugasemdir
Til hamingju með daginn elsku Erna mín, þú ert langflottust
Jónína Dúadóttir, 10.8.2007 kl. 07:52
Takk mér finnst það líka amk í dag
Erna Evudóttir, 10.8.2007 kl. 08:30
Enga hógværð hérna,einn dag í einu hefurðu verið flottust,allan tímann.
Til hamingju sæta
Birna Dúadóttir, 10.8.2007 kl. 10:40
Vá þú ert að verða skápur
Birna Dúadóttir, 10.8.2007 kl. 10:40
Hvað meinarðu ? Skápur ?
Jónína Dúadóttir, 10.8.2007 kl. 11:00
Það er svona þegar fólk er búið að vera leeeengi leeengi edrú
Birna Dúadóttir, 10.8.2007 kl. 11:06
Mér finnst fínt að vera skápur
Erna Evudóttir, 10.8.2007 kl. 12:34
Jájá, góður skápur ErnaHverjum datt þetta í hug og AF HVERJU skápur ?
Jónína Dúadóttir, 10.8.2007 kl. 12:49
Þetta er sagt um fólk sem veit ansi mikið meira en við hin um programmet og hefur náð að tileinka sér það.
Birna Dúadóttir, 10.8.2007 kl. 13:41
Ég er greinilega bara best í að vera skápur
Erna Evudóttir, 10.8.2007 kl. 13:50
Jamm bestust
Birna Dúadóttir, 10.8.2007 kl. 14:08
Ha...bíddu...á ég þá ekkert að panta ryksuguna? Innilegar hamingjuóskir Erna mín, þú ert algjör fyrirmynd!!!
Jóhanna Pálmadóttir, 10.8.2007 kl. 15:51
Jú það þarf líka að ryksuga skápa from time to time
Erna Evudóttir, 10.8.2007 kl. 15:57
Gunnar Helgi Eysteinsson, 11.8.2007 kl. 11:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.