Antonio Banderas
25.9.2007 | 11:28
Sko ég sá Antonio Banderas i strætó, eða sko mann sem lítur út eins og AB myndi líta út ef hann væri ekki kvikmyndastjarna og léti laga sig annað slagið! Gaman að þessu! Uppþvottavélin mín er ennþá biluð, hef áhyggjur af því að uppþvottaburstinn vaxi fastur á hendina á mér, þetta er orðin mjög langur tími kominn tími til að tína fram brjálaða útlendinginn í mér og hringja í þessaða blessaða snillinga sem eiga að laga helv.... maskínuna When you are going through hell, keep going, stal þessu frá Churhill
Athugasemdir
Gunnar Helgi Eysteinsson, 25.9.2007 kl. 11:39
Hm... passaðu þig á uppþvottaburstanum heillin, hann er lúmskur..
Jónína Dúadóttir, 25.9.2007 kl. 12:26
Er það núna sem ég bara verð kíkja í kaffi til þín.Eru fleiri huggulegir í þínu hverfi
Birna Dúadóttir, 25.9.2007 kl. 12:44
Antonio Banderas...yummie!!!
Jóhanna Pálmadóttir, 25.9.2007 kl. 14:05
Já einn og annar
Erna Evudóttir, 25.9.2007 kl. 18:20
Er brjálaði útlendingurinn í þér mættur á vígvöllinn ?
Jónína Dúadóttir, 26.9.2007 kl. 08:53
Já notaði hann til að kvarta yfir skortinum á uppþvottavélaviðgerðarmönnum, pakkaði honum svo bara niður aftur
Erna Evudóttir, 26.9.2007 kl. 10:27
Er brjálaði útlendingurinn í þér hættur að virka ? Þú kannski bara notar hann ekki nóg
Jónína Dúadóttir, 26.9.2007 kl. 12:22
Sammála þér þar, hann lá sko í dvala lengi sumars, en held samt hann sé allur að koma til
Erna Evudóttir, 26.9.2007 kl. 18:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.