Fló á skinni!
13.10.2007 | 07:56
Var að sjá að Leikfélag Akureyrar ætlar að setja upp Fló á skinni í janúar, langar rosalega að sjá það! Man eftir því þegar við fórum með mömmu í leikhúsið að sjá Fló á skinni, rosalegt ævintýri, man ekkert eftir um hvað þetta snerist en rosaleg upplifun að fara í leikhús, veit ekki hvað ég var gömul en kannski eldri og yngri systur mínar geti upplýst mig um það!
Svipuð upplifun var að fara til saumakonu sem ég veit að amk ég og Birna gerðum nokkrum sinnum með mömmu, skrýtið hvað þetta hefur breyst, fyrir mína krakka er upplifun að fara í eitthvað geggjað ferðalag, allt var betra hérna áður fyrr
Athugasemdir
Komdu í leikhús í janúar, ég skal kaupa miðana, sko leikhúsmiðana Ég man ekkert hvað við vorum gamlar þegar við fórum, en ég man að það var gaman og ég man alltaf eina setningu sem Gísli Halldórsson heitinn, sagði : "Nei nú halla ég mér"
Jónína Dúadóttir, 13.10.2007 kl. 10:18
Jamm þetta er flott minning.
Birna Dúadóttir, 13.10.2007 kl. 11:42
Gunnar Helgi Eysteinsson, 13.10.2007 kl. 13:22
Góðan dag ofurmamma
Jónína Dúadóttir, 14.10.2007 kl. 08:55
Góðan daginn sjálfur, búinn að fara í kirkju og á leiðinni á safnið með Evu og Ísak, er ehv húllumhæ fyrir krakka þar í dag
Erna Evudóttir, 14.10.2007 kl. 11:07
Góðan daginn líka,ég held ennþá að ég hafi ætlað í kirkju í morgun,svaf það bara af mér.
Birna Dúadóttir, 14.10.2007 kl. 11:39
Hehe...ég fór líka í kirkju í gærmorgun! Enda Becca að syngja!
Jóhanna Pálmadóttir, 15.10.2007 kl. 14:19
We are the churchgoing typesAmen
Erna Evudóttir, 15.10.2007 kl. 18:55
Ég fór ekki í kirkju !
Jónína Dúadóttir, 15.10.2007 kl. 20:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.