Hugmyndir á flugi!
12.1.2008 | 09:25
Ég fæ oft alveg rosalega góðar hugmyndir sem ég ætla svo endilega að skrifa um hérna á blogginu en svo þegar ég sest niður hérna þá eru þær alveg horfnar! Minnið eitthvað að gefa sig, ja enda mar að verða 45 á þessu ári, hlaut að koma að þessu!
Eitt af því sem ég man eftir núna er að það er svo skrýtið hvað maður man fullt af hlutum sem maður þarf alls ekki að muna, símanúmerið hennar Birnu frá því fyrir 25 árum síðan er eitt dæmi um það, hún er sko löngu búin að skipta um númer
Annað sem ég man sem er að vísu bara gott er þegar ég var í 6.bekk í Barnaskóla Akureyrar og Ingimar Eydal leyfði okkur að hlusta á Finlandia eftir Sibelius upp í sal í skólanum, það var stórkostleg upplifun, held ég hafi farið að kunna að meta klassíska tónlist þá, var einmitt að hlusta á þetta verk í gærkvöldi, bara snilld
Hef víst ekki tíma fyrir lengri ritgerð, er að fara með Evu á Aikido æfingu og Ísak er að fara til vinar síns, góða skemmtun allir þarna úti
Athugasemdir
Ég er líka með þetta þarna "dettursvonagjörsamlegadauðóvartúrmanni" genið af því að þetta er gen, hefur ekkert með aldur að gera
Góða skemmtun og faðmaðu alla familíuna frá mér
Jónína Dúadóttir, 12.1.2008 kl. 11:30
Takk gott að vita að þetta er meðfætt en ekki elliglöp
Erna Evudóttir, 12.1.2008 kl. 12:06
Ég er með þessa gen líka:
"dettursvonagjörsamlegadauðóvartúrmanni"
Gunnar Helgi Eysteinsson, 12.1.2008 kl. 12:50
Gunnar er frændi okkar, sniðugt
Erna Evudóttir, 12.1.2008 kl. 13:49
Fínn frændi það
Jónína Dúadóttir, 12.1.2008 kl. 15:03
Ertu ekkert komin heim af hákirkjulega sænska jólaballinu ? Hvar er Birna núna, geturðu ekki prófað að hringja í gamla númerið hennar ? Ég man alltaf bílnúmerið á bílnum hans pabba A 2228... og til hvers
Jónína Dúadóttir, 13.1.2008 kl. 14:07
Elsku Erna mín ég held þú sért nú bara samt farin að tapa,eins og Sigga móða.Og þar sem ég er nú aðeins á undan þér í röðinni,börnin Evu og Dúa,þá máttu vita það að þetta getur bara versnað.Ninna er yngri en við báðar svo að hún hefur engu að tapa
Birna Dúadóttir, 13.1.2008 kl. 18:13
Takk Birna mín, var að vona að þú mundir muna þetta
Jónína Dúadóttir, 13.1.2008 kl. 18:25
Ninna er alltaf í gróða
Erna Evudóttir, 14.1.2008 kl. 06:33
Ójá
Jónína Dúadóttir, 14.1.2008 kl. 07:07
Já og svo má ekki gleyma asmanum he he he he he he he
Jens Hjelm (IP-tala skráð) 19.1.2008 kl. 12:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.