Komin út úr skóginum!
29.5.2008 | 14:46
Ég og 3/5 af börnunum mínum erum sko búin að eyða deginum í skóginum í 25 stiga hita með ca 200 öðrum manneskjum á öllum aldri og þjóðernum
Þetta var alveg snilld, ég Eva og Ísak löbbuðum 3 kílómetra og Ívar labbaði 8 kílómetra, svo var borðað og krakkarnir fóru að synda í vatninu þarna
Bara frábær dagur
Nú í gær hringdi í mig kona sem vinnur hjá ónefndu skipafélagi íslensku og vildi endilega fá að setja búslóðina mína í gám á föstudaginn
í þessari viku, mér tókst nú alveg að útskýra fyrir henni að það væri ekki hægt
En þetta leysist nú sjálfsagt allt, jafnvel á þessu ári, held það nú bara
See you people next month
Verð bara að bæta við að það er verið að spá 28 stiga hita hérna um helgina, þið vilduð svo fá að vita það
Athugasemdir
Hvað segirðu vildir þú ekki leyfa grey konunni að fá gáminn með öllum eigum ykkar 3 vikum áður en þið flytjið ?? Þú mátt alveg segja mér hvað er heitt hjá þér, deildu svo með 2 og þá veistu hvað er hlýtt hérnaSjáumst í næsta mánuði
Jónína Dúadóttir, 29.5.2008 kl. 15:03
Ég bara leiðinleg við hana bara hitabylgja hjá þér
Erna Evudóttir, 29.5.2008 kl. 17:01
Bæði hiti og jarðskjálftar hjá mér
Birna Dúadóttir, 29.5.2008 kl. 22:22
Birna er nú bara algjör spennufíkill fær sér sjálfsagt líka far með flutningabíl norður í land til að fá meiri spennu
Erna Evudóttir, 30.5.2008 kl. 05:27
Ég er að vinna kvöldvakt og helgarvakt... það er heitt í vinnunni.
Gunnar Helgi Eysteinsson, 30.5.2008 kl. 05:31
Ég verð komin í sumarfrí 15.18 að staðartíma og það má líklega deila með 3 í hitatöluna hjá ykkur til að finna út hitann/kuldann hjá mér
Jónína Dúadóttir, 30.5.2008 kl. 12:35
Erna Evudóttir, 30.5.2008 kl. 17:12
Jamm ég fór víst heldur snemma heim,svona hitatölulega séð.Hebbði átt að dvelja lengur í Svíaríki sýnist mér
Birna Dúadóttir, 31.5.2008 kl. 00:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.