Komin í hús!
4.7.2008 | 07:37
Komin heim í húsið mitt, komum með norrænu í gær, frábært veður alla leiðina
Nú svo var brunað í Bónus á Egilsstöðum og síðan hingað á Fáskrúðsfjörð
Mér líst bara vel á húsið nóg pláss fyrir alla
Nú þetta er náttúrulega mín Grenivík og verður í einhverntíma en það venst sjálfsagt
Krakkarnir fóru strax að veiða í gær og núna eru 2 myndarlegir fiskar í fötu út á tröppum
Svona að lokum,ég fer út í tunnu og niðrí vaskahús, just like home
Athugasemdir
Velkomin heim elsku dúllan mínGaman að fá beina útsendingu í gærkvöldi frá þinni "Grenivík"Svo núna ertu sem sagt "ein heima"
Jónína Dúadóttir, 4.7.2008 kl. 07:41
Já og svona príma rigning hérnaFór nú samt í búðina, pósthúsið og bankann, 2 síðustu stofnanir í sama húsi og búðin við hliðina, allt í næsta húsi hérna í sveitinni
Erna Evudóttir, 4.7.2008 kl. 14:25
Já svo um að gera að nota ferðina, að gömlum og góðum sveitasiðMeð þetta allt svona í túnfææææitnum
Jónína Dúadóttir, 4.7.2008 kl. 14:44
fæææætinum
Jónína Dúadóttir, 4.7.2008 kl. 14:45
GrenivíkErtu búin að nefna"söddnó"Velkomin
Birna Dúadóttir, 4.7.2008 kl. 21:56
Geymi þetta með að segja velkomin heim þangað til þú flytur hingað aftur
En gangi þér samt vel með sláttuvélina þína og engi hanga of lengi i "kauffélaginu", ertu búin að kaupa þér gúmmístígvél og lopapeysu?
Btw þá gleymdi Ívar grárri fleecepeysu hérna sem ég gleymdi að láta þig hafa, og eins skóna sem ég fékk lánaða hjá honum eftir ferminguna...og getur verið að stígvélin hans séu hérna líka, hann vildi ekki taka þau með sér heim síðast sem hann var hérna, getur verið að hann ætli þá jafnvel að koma til mín aftur...
Elska ykkur öll í tætlur!!! Ps: Addó hefur það þrælfínt, náði næstum því fuglinum í morgun...hahaha... og undur og stórmerki, þegar hann kúkaði í kvöld þá HITTI HANN Í DALLINN!!!
Jóhanna Pálmadóttir, 5.7.2008 kl. 00:23
Hvað ertu eiginlega búin að gera við köttinn, kúka í dallinn hvað? Þú mátt bara eiga þetta,þú getur td notað stígvélin næst þegar þú ferð út í skóg du din skogsmulle Ps Fór á alveg frábæra samkomu hérna í gærkvöldi
Erna Evudóttir, 5.7.2008 kl. 09:29
Eru samkomur þarna ?
Jónína Dúadóttir, 5.7.2008 kl. 09:39
Voru margir á samkomunni?Eða eru bara þeim mun fleiri efnilegir
Birna Dúadóttir, 5.7.2008 kl. 11:33
Fámennt en góðmennt, auðvitað eru samkomur hérna og náttúrulega í næsta húsi (eins og allt annað í þessum bæ)
Erna Evudóttir, 5.7.2008 kl. 20:22
Í sama húsi og apótekið og Ríkið
Jónína Dúadóttir, 5.7.2008 kl. 20:29
Frábær bær sem þú ert komin í
Birna Dúadóttir, 6.7.2008 kl. 10:05
Líka fallegur bær
Jónína Dúadóttir, 6.7.2008 kl. 11:04
... ég finn fyrir smá öfund
Gunnar Helgi Eysteinsson, 6.7.2008 kl. 21:51
Hahahaha...skogsmulle själv!!!
Jóhanna Pálmadóttir, 7.7.2008 kl. 15:01
Verður Gunnar næstur til að flytja heim
Birna Dúadóttir, 7.7.2008 kl. 17:57
Hann gæti flutt á Eskifjörð... til dæmis
Jónína Dúadóttir, 7.7.2008 kl. 19:08
Geymi Mjóafjörð bara fyrir Gunnar
Erna Evudóttir, 7.7.2008 kl. 20:11
Loðmundarfjörður er líka til þarna einhversstaðar
Jónína Dúadóttir, 7.7.2008 kl. 20:55
Gunnar myndi una sér vel í Loðmundarfirði,ég er alveg viss um það
Birna Dúadóttir, 8.7.2008 kl. 09:06
Og svo samkvæmt ævagömlum austfirskum nafnahefðum yrði hann kallaður Gunnar Loðmundur(Að gefnu tilefni vil ég taka það skýrt fram að ég þekki hvorki haus né sporð á ævagömlum austfirskum nafnahefðum....)
Jónína Dúadóttir, 8.7.2008 kl. 09:24
Gunnar Loðmundur...I love it!!!
Jóhanna Pálmadóttir, 8.7.2008 kl. 11:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.