Kreppa eða hvað?
16.10.2008 | 08:10
Fyrirsögnin hefur ekkert með það að gera sem ég ætla að skrifa hér, er bara alltaf svo andlaus þegar að fyrirsögnum kemur
Hefur verið nóg að gera síðan ég kom heim, talaði bæði við Einar og Jóku í gær sem var gott, Einar var í tjaldi úti í skógi en Jóka ekki
Er soldið að pirrast útí framboð á menningarviðburðum sem eru í boði hérna, meirihlutinn virðist vera fyrir svona uberlistaspírur og ég vil ekki meina að ég tilheyri þeirri tegundinni
Nú svo hringdi í mig kona frá augnlækni í Borg óttans og var að bjóða mér tíma fyrir Evu og fannst henni endilega að ég gæti bara komið á föstudaginn sem mér fannst ekki þar sem ég bý svolítið langt frá þessari blessaðri borg
Þá spurði hún:Hvenær kemuru suður, eins og það séu einhver lög fyrir því að sveitavargurinn verði að koma þangað reglulega
Sko ég fer ekkert suður ef ég þarf þess ekki nauðsynlega, ef mig vantar eitthvað sem ekki er hægt að fá hér, sem er slatti, þá er eiginlega meira lógiskt að fara á Akureyri til að ná í það
eða hvað? En allavega, hér er fallegt, bæði umhverfið og veðrið
Getur maður beðið um eitthvað meira?
Athugasemdir
Tók hann ekki frænku sína með í útileguna ?
Jónína Dúadóttir, 16.10.2008 kl. 08:30
Hann hefur örugglega boðið henni en hún hefur sjálfsagt ekki haft tíma, fer örugglega með næst
Erna Evudóttir, 16.10.2008 kl. 09:21
Æi já tímaleysi var það
Jónína Dúadóttir, 16.10.2008 kl. 11:56
Ég spyr nú bara eins og konan,hvenær kemurðu suður?Bubbi
Birna Dúadóttir, 16.10.2008 kl. 12:21
Hún er nýbúin að vera fyrir sunnan, það er nóg handa þér í biliHún kemur norður næst til að stoppa, ekki sjoppaEigum við að slást um hana
Jónína Dúadóttir, 16.10.2008 kl. 12:33
Birna Dúadóttir, 16.10.2008 kl. 13:28
Birna Dúadóttir, 16.10.2008 kl. 18:15
Engin kreppa i boltanum
Erna Evudóttir, 16.10.2008 kl. 18:30
Á einhver aur fyrir bolta
Birna Dúadóttir, 17.10.2008 kl. 10:56
Ég á bolta... tvo
Jónína Dúadóttir, 17.10.2008 kl. 11:39
Nei, hafði einmitt ekki tíma akkúrat þann daginn til að fara í útilegu, fer sko alveg örugglega með næst, er svo svakalega mikið fyrir þetta með að vera úti í skógi í Svíþjóð með öllum pöddunum (Einari og Co ).
Jóhanna Pálmadóttir, 17.10.2008 kl. 14:19
Vissi það Jóka mín, du din Skogsmulle
Erna Evudóttir, 17.10.2008 kl. 16:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.