Laun!
15.11.2008 | 10:09
Segið mér eitt, hvernig hefur maður samvisku til að taka við 1950 þúsund krónum á mánuði í laun á þessum tímum?
Mér er alveg sama þó viðkomandi sé bankastjóri og sjálfsagt (eða vonandi) með viðskiptafræði eða hagfræðimenntun, enginn er svo mikilla launa virði alveg sama hvað fólk hefur verið í löngu námi
Eina góða við þetta er þá að ef þessi blessuð manneskja hefur verið á námslánum þá er hún sneggri að borga þau tilbaka þegar launin eru svona há, ekkert annað jákvætt við þetta bull
Annars lít ég nú á kreppuna þannig að hún var sennilega ekki mér að kenna,ég get ekkert gert í þessu máli og þá þýðir lítið að hafa áhyggjur af því
Fór á dúndursamkomu í gærkvöldi að venju, alveg snilld
Jæja kaupið ykkur nú smá laugardagsnammi, over and out
Athugasemdir
Manneskja með 1950 þúsund á mánuði vinnur ekkert betur en einhver í sama starfi með helmingi minnaSvo er skýringin sú að bankastjóri þarf að hafa svo mikið kaup af því að hann ber svo mikla ábyrgð, það er að segja á meðan bankanum gengur vel.... þegar bankinn fer svo á hausinn þá bera þeir allt í einu enga ábyrgð...Þetta ástand er ekki mér að kenna heldur Eigðu góðan dag og borðaðu fullt af nammi
Jónína Dúadóttir, 15.11.2008 kl. 11:24
Með nítján og fimmtíu,þá hlýtur mar a vera rosa gáfaður,ha
Birna Dúadóttir, 16.11.2008 kl. 11:46
Já erhaggi bara.......
Jónína Dúadóttir, 16.11.2008 kl. 12:04
Eddna mín,ertu sofnuð
Birna Dúadóttir, 18.11.2008 kl. 18:26
Hún steinsefur örugglega
Jónína Dúadóttir, 18.11.2008 kl. 22:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.