Snjór!
3.1.2009 | 11:50
Já það snjóar svona fallega hérna, gott mál
Ég er búin að hafa það rosalega gott, var á frábærri samkomu í gær
Við erum búin að vera voða mikið saman fjölskyldan og það hefur verið voða notalegt! Því miður fara Einar og Johanna bráðum heim aftur en það er eins og það er
Hænurnar mínar eru bara hressar, virkilega gaman að þeim
Ég fer að vinna á mánudaginn og það finnst mér fínt, ágætt að vera í fríi en þetta er orðið fínt í bili
Það er nú akkúrat ekkert samhengi í því sem ég hef skrifað hérna en það er líka allt í lagi, ég er svo jákvæð núna að það er næstum því scary
Fariði nú og kaupið ykkur laugardagsnammi
Athugasemdir
Ég á svo mikið nammi eftir jólin að ég kaupi ekkert í dag eða næstu vikur... komin á aldurinn sem Birna er að bíða eftir, þegar maður fær bara konfekt og kerti í jólagjafirSkelfilegt að þú skulir vera svona jákvæð.....Kysstu Einar og Jóhönnu bless frá mér
Jónína Dúadóttir, 3.1.2009 kl. 12:31
Alltaf nammidagar hjá mér,mamma sagði að ég mætti það og ekki skrökvar hún,frekar en Mogginn
Birna Dúadóttir, 6.1.2009 kl. 08:40
Eða eins og Linda Björg segir með marga geislabauga yfir höbbðinu: Pabbi minn stjórnar og hann segir ég má fá kók hjá ömmuVarla lýgur hún... má að vísu ekki fá kók heima hjá sér....
Jónína Dúadóttir, 6.1.2009 kl. 09:40
alveg brilliant skvísa
Birna Dúadóttir, 6.1.2009 kl. 09:44
Hún er flottur lítill púki
Jónína Dúadóttir, 6.1.2009 kl. 13:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.