Erfitt!
11.1.2009 | 10:58
Ákvað að vera í þunglyndi því Einar minn og Johanna eru farin heim til sín, já einmitt heim til sín en svo kom Common sense og eyðilagði allt þunglyndið fyrir mér, þau fóru sko heim þar sem þeim líður vel og eru að gera góða hluti eins og að mennta sig og svo framvegis
Ég sakna þeirra rosalega en þetta er bara í góðu lagi, alveg eins og þetta á að vera
Nú hún nafna mín talaði við mig í gær, að vísu bara óvart, hún ætlaði að tala við Ívar en hann var bara ekki heima, held þetta sé í þriðja skipti síðan ég flutti frá Moder Svea sem hún hefur talað við mig í síma
I have a confession to make, er ekki búin að pakka niður jólatrénu en það er líka ok, hjónaballið var í gær og ég fór ekki
Over and out
Athugasemdir
Þetta er nú eiginlega búið hjá þér áður en það byrjar,sko þú fórst ekki á hjónaballið.Ætlar þú ekki að vera nein party pingla,stuðkoddi eða fjör-lalli

það var rosa gaman að fá krakkana,þau hittu Kiddu og stelpurnar alveg óvart hjá Aðalstöðinni.Litlu skvísurnar enn að missa sig yfir hvað það var æði að hitta Einar
Birna Dúadóttir, 11.1.2009 kl. 11:12
Hvassegiru fórstu ekki á hjónaballið ?
Eru ennþá haldin hjónaböll, svona sveitarómantík og þú gefur bara bíp í það ?
Mér líst vel á þig
Jónína Dúadóttir, 11.1.2009 kl. 12:41
Sko Ninni minn skrái bara ykkur hjónaleysin á næsta hjónaball

Erna Evudóttir, 11.1.2009 kl. 19:40
Nei nei, ég er góð
Jónína Dúadóttir, 11.1.2009 kl. 20:08
Ertu búin að pakka niður trénu
Birna Dúadóttir, 14.1.2009 kl. 20:50
NEI, engar takkaýtingar takk
Erna Evudóttir, 15.1.2009 kl. 01:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.